Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Tap í lokaleik Ungmennaliðsins - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Farsímaútgáfa - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Sjá tölfræði leiksins 
    Stjarnan U - Akureyri U  35-30 (15-14)
1. deild karla
TM Höllin
Fös. 7. apr. 2017 klukkan: 19:30
Dómarar: Þorvar Bjarmi Harðarson og Árni Snær Magnússon
Umfjöllun

Arnþór Gylfi og Sigþór voru atkvæðamestir í markaskorun liðsins



8. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tap í lokaleik Ungmennaliðsins
Strákarnir í Ungmennaliði Akureyrar mættu Ungmennaliði Stjörnunnar í gærkvöldi í lokaumferð 1. deildar karla. Stjörnuliðið fékk óskabyrjun og skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins. En smátt og smátt vann Akureyrarliðið sig inn í leikinn og náði að jafna en þegar gengið var til hálfleiks leiddi Stjarnan með einu marki, 15-14.

Strákarnir jöfnuðu strax í upphafi seinni hálfleiksins en Stjarnan reyndist sterkari á lokasprettinum og lauk leiknum með óþarflega stórum, eða fimm marka sigri heimamanna, 35-30.

Mörk Akureyrar U: Arnþór Gylfi Finnsson 7, Sigþór Gunnar Jónsson 5, Heimir Pálsson 4, Vignir Jóhannsson 4, Arnór Þorri Þorsteinsson 3, Jóhann Einarsson 3, Jason Orri Geirsson 2, Arnar Þór Fylkisson 1 og Dagur Gautason 1 mark.
Í markinu stóðu Arnar Þór Fylkisson 1 og Páll Snævar Jónsson

Mörk Stjörnunnar U: Gunnar Johnsen 10, Birgir Steinn Jónsson 9, Þorlákur Rafnsson 8, Finnur Jónsson 3, Hörður Kristinn Örvarsson 3, Aron Ásmundsson 1 og Bjarki Rúnar Sverrisson 1.
Í marki Stjörnunnar stóðu Ólafur Rafn Gíslason og Bjarki Rúnar Sigurðsson.

Akureyri U lauk því keppni í 9. sæti deildarinnar með átta sigra og tvö jafntefli.

Tengdar fréttir

Garðar og Sigþór eru meðal fjölmargra leikmanna í sögu Ungmennaliðsins



7. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Stjarnan U - Akureyri U
Það er komið að lokaumferð 1. deildar karla sem er leikin í dag. Ungmennalið Akureyrar heldur í Garðabæinn og mætir þar Ungmennaliði Stjörnunnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 í TM Höllinni, sem hér á árum áður var kölluð Mýrin.

Liðin mættust hér á Akureyri í byrjun janúar og lauk þeim leik með jafntefli, 27-27 þar sem Stjarnan jafnaði á lokasekúndum leiksins en Akureyrarliðið hafði haft býsna örugga forystu mestallan leikinn.

Fyrir leikinn í dag er Stjarnan U í 8. sæti deildarinnar með 19 stig en Akureyri U í 9. sæti með 18 stig. Þannig að leikurinn sker úr um það hvort liðið hafnar í 8. sætinu. Akureyrarliðið þarf sigur til að vinna sætið.

Sigurreifir piltar eftir sigurinn á KR í síðustu umferð

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga kost á því að mæta á leikinn og styðja strákana. Þeir hafa sýnt og sannað í vetur að þeir eru reynslunni ríkari af þátttöku í fullorðinna manna deild.

Öll lokaumferðin er leikin á sama tíma og rétt að benda Akureyringum á að Hamrarnir eiga heimaleik í KA heimilinu þar sem þeir mæta Þrótti Reykjavík. Hamrarnir sem sitja í 11. sæti eiga með sigri möguleika á að vinna sig upp í 10. sætið. Þróttur er fyrir leikinn í 6. sæti og með sigri gætu þeir átt möguleika á að komast í umspil um Olís-deildarsæti að því gefnu að önnur úrslit verði þeim hagstæð. Það má því búast við spennandi leik hjá Hömrunum í kvöld.

Til baka

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson