Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það var hart tekist á í vörninni og Flóki varði víti með tilþifum
21. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Enn tap - en besti leikur vetrarins
Akureyri tapaði í gær enn einum leiknum á Íslandsmóti karla, N1 deildinni, þegar Stjarnan kom í heimsókn. Eftir að hafa forystu í leikhléi, 16:14, urðu okkar menn að sætta sig við tap - 29:26. Með sigrinum komst Stjarnan í efsta sæti deildarinnar, Garðbæingarnir eru með 10 stig en Akureyri er í næst neðsta sæti með 2 stig. Liðið sigraði Aftureldingu á útivelli í fyrsta leik mótsins en hefur nú tapað fimm í röð.
Leikurinn í gær var að mörgu leyti sá besti hjá Akureyri í vetur, á því leikur ekki nokkur vafi. Varnarleikurinn var á löngum köflum mjög góður og sóknarleikurinn var léttur og skemmtilegur lengstum, leikkerfin gengu vel upp og mörkin komu úr öllum stöðum; fyrir utan, eftir gegnumbrot, úr hornunum og af línunni.
Leikurinn var í járnum fram í miðjan fyrri hálfleikinn. En eftir að staðan var 8:7 fyrir gestina skoruðu okkar menn fimm mörk í röð - og komust þá í 12:8. Stjarnan náði aðeins að laga stöðuna en okkar menn komust í 16:13, en eftir aukakast í blálok fyrri hálfleiksins náði einn Stjörnumaðurinn að skora með langskoti og minnka muninn niður í tvö mörk.
Seinni hálfleikur var mjög jafn framan af en Stjarnan náði reyndar frumkvæðinu snemma, jafnaði 17:17 eftir rúmar fimm mínútur og komst svo fljótlega tveimur mörkum yfir. Okkar mönnum gekk ekki nógu vel í sókninni og fyrstu 17 mínúturnar gerðu þeir aðeins fjögur mörk. Bæði var vörn Stjörnunnar mjög góð, Roland Eradze var í miklu stuði og menn óheppnir með skot. En með mikilli baráttu tókst strákunum að jafna; Magnús Stefánsson - sem hélt upp á það með mjög góðum leik að hann var í gær valinn í landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar - jafnaði 21:21 þegar tæpar 18 mínútur voru búnar.
Hörður Fannar kom Akureyri svo í 22:21 með marki af línunni eftir frábæra sendingu Rúnars Sigtryggssonar, Stjarnan jafnaði og Goran skaut í stöng úr horninu í næstu sókn. Óheppinn þar Goran, sem lék mjög vel í gær. Stjarnan skoraði svo tvö mörk með skömmu millibili, síðan það þriðja í röð, og loks það fjórða, og komst í 26:22. Þá hafði Heiddi skotið í stöng úr horninu og Goran skotið í gólfið og yfir úr víti. Það voru alls kyns smáatriði sem brugðust á lokamínútunum og Stjörnumenn voru sterkari á lokasprettinum.
Akureyrarliðið gaf því miður eftir á síðustu mínútunum, sem var grátlegt eftir góða frammistöðu. En liðið er á réttri leið. Það eflist með hverjum leik, en þa er vissulega ekki nóg þegar öllu er á botninn hvolft; þegar góðir leikir skila engum stigum í sarpinn er það auðvitað neyðarlegt og jafnvel hætta á því að menn hengi haus. En það er algjör óþarfi, því einn sigur gæti gjörbreytt þankagangi allra. Leikmenn leika vel og með smá heppni hefði liðið t.d. allt eins getað sigrað í gær eins og í síðustu leikjum.
Áhorfendur voru vel með á nótunum í dag, engan bilbug er á þeim að finna og það er mjög jákvætt.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson