Heiðmar Felixsson og Samúel Ívar
| | 22. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar"Okkar menn í útlandinu" - Fátt um fína drættiFulltrúar Akureyrar á erlendri grundu voru ekki áberandi í leikjum helgarinnar. Arnór Atlason er á toppnum í Danmörku með FCK og Elverum, undir stjórn Axels Stefánssonar, komst reyndar áfram í norsku bikarkeppninni.- Arnór Atlason og félagar í FC Kaupmannahöfn eru enn í efsta sæti dönsku deildarinnar eftir sigur á TMS Ringsted á útivelli um helgina, 34:30. Það vakti athygli að Arnór skoraði ekki í leiknum. FCK hefur þriggja stiga forskot í deildinni.
- Árni Sigtryggsson gerði eitt mark þegar lið hans, Fraikin Granollers, tapaði á útivelli fyrir Ciudad de Logroño, 25:28, í spænsku deildinni. Granollers er í 13. sæti af 16 liðum.
- Heiðmar Felixson gerði 5 mörk fyrir TSV Hannover-Burgdorf þegar liðið gerði jafntefli, 23:23, við SV Post Schwerin í þýsku 2. deildinni, norðurhluta. Burgdorf er sem stendur í 5. sætinu.
- Elverum komst áfram í norsku bikarkeppninni með 27:24 sigri á Runar. Samúel Ívar Árnason gerði 3 mörk í leiknum.
- Alfreð Gíslason stýrði sínum mönnum í VfL Gummersbach gegn TBV Lemgo um helgina, en varð sætta sig við eins marks tap á heimavelli, 29:30. Gestirnir höfðu fjögurra marka forskot í hálfleik, 15:11. Guðjón Valur Sigurðsson lék ekki með vegna meiðsla en Sverre Jakobsson lék í vörninni og fékk gult spjald á 23. mín.
- Andrius Stelmokas gerði eitt mark fyrir Füchse Berlin sem tapaði með eins marks mun, 26:25, fyrir Wilhelmshavener HV á útivelli í þýsku 1. deildinni.
- Gummersbach er í 6. sæti þýsku 1. deildarinnar. Berlín er í 16. og þriðja neðsta sætinu af 18 liðum, einu sæti ofar en Tusem Essen, sem Halldór Sigfússon sem er á mála hjá.
|