Spurning hvort Maggi komist til Eyja á morgun?
| | 30. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarLeiknum við Vestmannaeyjar frestað til miðvikudagsLeik karlaliðs Akureyrar við ÍBV í N1 deildinni sem vera átti í kvöld hefur verið frestað til morguns, miðvikudags. Ástæðan er sú að ekki er flugfært til Eyja þannig að hvorki okkar menn né dómararnir komast til Eyja.
Leikurinn hefur verið settur á klukkan 19:00 á morgun og verðum við bara að vona að veðurguðirnir verði hliðhollari þá. |