Akureyri er komið í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins
| | 4. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri lagði ÍR, komið í 8-liða úrslitKarlalið Akureyrar var nú rétt í þessu að leggja fyrstu deildarlið ÍR að velli í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikið var á heimavelli ÍR-inga að Austurbergi. Akureyri hafði forystu allan leikinn en gekk illa að hrista ÍR alveg af sér.
Akureyri komst tvisvar í fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik, í 4-8 og 7-11, hálfleikstölur voru þó 9-11. Akureyri hóf síðari hálfleikinn af miklum krafti og komst strax í 11-18. Er um kortér lifði leiks leiddi Akureyri 13-20 en það sem eftir lifði leiks nálgaðist ÍR okkar menn. Lokatölur voru 22-24 fyrir Akureyri og ljóst að Akureyri er komið áfram í næstu umferð bikarkeppninnar.
Leikurinn var í beinni lýsingu hér á síðunni og bendum við áhugasömum á hana fyrir ítarlegri lýsingu á gangi leiks.
Mörk Akureyrar skiptust þannig: Magnús 5, Andri Snær og Goran 4 hvor, Hörður Fannar og Jónatan 3 hvor, Heiðar Þór 2, Einar Logi, Þorvaldur og Rúnar 1 mark hver. |