Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heiddi og Ási fóru á kostum um helgina



4. febrúar 2008 - Þjálfarar skrifar

2. flokkur karla: Góður sigur á Víkingum

2. flokkur Akureyrar lék loksins leik í deildarkeppninni um helgina en liðið hafði þá ekki spilað leik frá því 11. nóvember. Liðið mætti Víkingum í Víkinni á föstudag og átti reyndar að leika annan leik á laugardag en honum var frestað af HSÍ með skömmum fyrirvara og greinilegt að þar á bæ þurfa menn að fara í naflaskoðun þegar kemur að framkvæmd mótamála. Þetta þýðir að liðið þarf að leika þrjá leiki í næstu suðurferð.

Segja má að grunnurinn að sigri hafi verið lagður á fyrsta stundarfjórðungi leiksins en Akureyri komst í 10-3 þar sem að nánast öll mörkin voru skoruð úr hraðaupphlaupum eða hröðum sóknum. Heiðar Þór fór mikinn á þessum kafla og skoraði átta mörk af þeim tíu fyrstu. Liðið lék svo fínan sóknarleik það sem eftir lifði hálfleiksins en staðan í hálfleik var 15-22.

Síðari hálfleikur var ekki nægilega vel leikinn af hálfu strákanna án þess að sigrinum væri verulega ógnað. Munurinn var fjögur til átta mörk og á endanum var þriggja marka sigur staðreynd, 34-37.

Allir leikmenn hópsins komu við sögu í leiknum enda breidd hópsins nokkuð góð.

Markahæstir okkar manna voru Heiðar Þór með 14 mörk og Ási með 8.

Liðið hefur nú leikið 5 leiki af þeim 15 deildarleikjum sem spilaðir verða fram að úrslitakeppni og hefur sigrað fjóra þeirra og tapað einum.

Næsti leikur liðsins er í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar en þá mætir liðið Völsurum í Vodafonehöllinni á þriðjudaginn klukkan 17.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson