Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nikolaj og Einar Logi mæta til leiks í kvöld



11. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri - Stjarnan klukkan 19:00 - bein lýsing

Í kvöld tekur meistaraflokkur karla á móti Stjörnunni úr Garðabæ og hefst leikurinn klukkan 19:00 í KA heimilinu. Liðin mættust í hörkuleik í Garðabænum þann 9. desember og þar rændu Stjörnumenn sigri á lokasekúndu leiksins. Í þeim leik voru miklar sviptingar, Akureyri hreinlega valtaði yfir Stjörnuna fyrstu 20 mínútur leiksins en Stjarnan náði að vinna upp sjö marka forystu og jafna fyrir leikhlé. Liðin skiptust síðan á að hafa forystu í síðari hálfleik en nú er sem sé komið að því að kvitta fyrir þann leik.

Einar Logi og Nikolaj koma inn í liðið að nýju eftir leikbönn og nú þurfa stuðningsmenn að fjölmenna á leikinn til að taka á því með strákunum sem ætla sér örugglega að sýna okkur hvað þeir geta í kvöld.

Við ætlum að vera með beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún klukkan 19:00.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:00 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson