Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Maggi tryggði stig í síðasta heimaleik gegn Aftureldingu

28. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mikilvægur leikur hjá körlunum á sunnudaginn

Það stefnir í baráttuleik hjá karlaliði Akureyrar á sunnudaginn klukkan 15:00 þegar liðið tekur á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ. Með sigri má segja að liðið gulltryggi sæti sitt í deildinni á meðan að leikmenn Aftureldingar verða að sigra til að halda í vonina um að forðast fall.

Leikir liðanna í vetur hafa verið æsispennandi, síðast mættust liðin í Mosfellsbæ þann 3. febrúar og þar náði Akureyri að knýja fram eins marks sigur á lokamínútunum 26-27 en sá leikur var einmitt sýndur í sjónvarpinu.

Þá var ekki síður dramatík í fyrri leik liðanna sem fram fór hér á Akureyri þann 10. nóvember. Afturelding komst þá yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar mínúta var eftir af leiknum en Magnús Stefánsson jafnaði með sirkusmarki þegar hálf mínúta var eftir af leiknum og þar við sat.

Það má því búast við hörkuleik á sunnudaginn þar sem leikmenn Akureyrar ætla örugglega að sýna að liðið eigi heima í hópi þeirra bestu og kveða falldrauginn endanlega niður.

Það er rétt að ítreka það að leikurinn hefst klukkan 15:00 á sunnudaginn en ekki klukkan 20:00 eins og segir í síðasta Vikudegi en leiktímanum var breytt fyrir nokkru síðan.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson