Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Srembinn dagur hjá Jóhönnu og stelpunum

8. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingaflokkur kvenna: Tveir leikir gegn FH á miðvikudag

Á morgun, miðvikudag leikur unglingaflokkur kvenna tvo leiki í deildarkeppninni. Andstæðingarnir í báðum leikjum eru FH sem situr sem stendur í botnsæti deildarinnar. Báðir leikirnir fara fram í KA heimilinu og hefst sá fyrri klukkan 17:00 og er í sá leikur í raun heimaleikur FH-inga. Liðin fá raunar ekki langa hvíld því að þau mætast síðan strax aftur á sama stað klukkan 18:30 og telst sá leikur vera heimaleikur Akureyrar.

Akureyrarstelpurnar eru í þriðja sæti deildarinnar en gætu hugsanlega misst það til Fram ef þær misstíga sig í þessum tveim leikjum.

Síðasti leikur stelpnanna í deildarkeppninni verður svo sunnudaginn 13. apríl klukkan 13:00 og er það einmitt heimaleikur gegn Fram. Við hvetjum alla til að mæta á leikina og taka duglega á því með stelpunum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson