Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Elmar lokaði markinu í dag
22. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. fl. karla: Stórsigur á Gróttu í dag
Strákarnir unnu fyrirhafnarlítinn stórsigur á botnliði Gróttu þegar liðin mættust í Íþróttahöllinni í dag. Þrátt fyrir yfirburði gekk strákunum ekkert alltof vel að hrista Gróttupiltana af sér og í hálfleik munaði aðeins þrem mörkum á liðunum, staðan 12-9 fyrir Akureyri. Markvörður Gróttu átti stórleik í fyrri hálfleik og hélt sínum mönnum algjörlega á floti með því að taka mörg dauðafæri auk þess sem fjölmörg skot Akureyrarstráka höfnuðu í tréverkinu.
En þó að markvarslan hafi verið góð hjá Gróttu var hún enn betri hjá Elmari Kristjánssyni í Akureyrarmarkinu sem varði 13 skot í fyrri hálfleik, þar af eitt víti. Elmar hélt stórleik sínum áfram í síðari hálfleik en hann var kominn með 21 skot varin, þar af þrjú vítaköst þegar honum var skipt útaf í stöðunni 20-12. 64% markvarsla sem er ekki slæmt.
Í byrjun síðari hálfleik gerðu Akureyrarstrákar svo út um leikinn, forystan varð fljótlega 17-11 og allur vindur úr Gróttustrákum. Munurinn varð tíu mörk 23-13 og jókst jafnt og þétt þar til flautað var til leiksloka en lokatölur urðu 33-19 fyrir Akureyri.
Leikurinn varð í raun aldrei skemmtilegur, getumunur liðanna þvílíkur en samt ljóst að það verða erfiðari andstæðingar sem strákarnir fá í 8-liða úrslitunum og þá verða menn að leika af fullum krafti allan tímann.
Mörk Akureyrar:
Valdimar 9 (1 víti), Fannar og Bjarni 6 hvor, Gústaf og Halldór 3 hvor, Arnar og Hákon 2 hvor og loks Jón og Eiríkur sitt markið hvor.
Í markinu varði Elmar 21 skot (3 víti) eins og áður segir og Siguróli sem lék síðasta hluta leiksins varði 5 skot.
Þessi sigur færði strákunum 2. sæti riðilsins og þar með heimaleikjarétt gegn Haukum í 8-liða úrslitunum en ekki er búið að tímasetja þann leik ennþá.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson