Í gærkvöldi komu leikmenn meistaraflokks Akureyrar Handboltafélags saman og lögðu öll spilin á borðið því að tilefnið var að spila félagsvist. Að lokinni venjubundinni æfingu var sest niður og tekið til við spilin ásamt nokkrum mökum og stjórnarmönnum.
Eftir að búið var að fara yfir leikreglur félagsvistar þurfti að grípa til kynskiptiaðgerðar á nokkrum aðilum þar sem konurnar voru í miklum minnihluta en það tókst með miklum ágætum án mikilla aukaverkana. Eins og vanalega var lukkan mönnum mishliðholl en þegar upp var staðið þurfti að yfirfara stigaskor af mikilli kostgæfni.
Það er til siðs á slíkum mótum að afhenda skussaverðlaun og þar fór Gústaf Línberg Kristjánsson með yfirburðasigur með langfæst stig á skorkortinu.
Í kvennaflokki sigraði Hafdís Erlingsdóttir og í öðru sæti varð Hafþóra nokkur Einarsdóttir og að sjálfsögðu fengu þær vegleg verðlaun fyrir.
Það var svo Geir Guðmundsson sem skaut öllum körlunum ref fyrir rass og varð stigahæstur og fékk vandaðan síma í verðlaun.
Þetta var hin skemmtilegasta kvöldstund og nú bíða menn bara spenntir eftir næstu hugmynd skemmtinefndar Akureyrar Handboltafélags.
Sjá fleiri myndir frá spilakvöldinu.