Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það var rafmögnuð spenna síðast þegar liðin mættust í Höllinni
1. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Síðasti deildarleikurinn er á sunnudaginn
Á sunnudaginn lýkur keppni í N1 deild karla og þar með gefst síðasta tækifærið til að mæta og hvetja lið Akureyrar sem tekur á móti Fram klukkan 16:00 á sunnudaginn.
Það er mikið í húfi fyrir lið Akureyrar sem ætlar sér að gulltryggja áframhaldandi sæti sitt í deildinni með sigri í leiknum. Við heitum því á alla velunnara handboltans á Akureyri að fjölmenna í Höllina á sunnudaginn og taka hraustlega á því með strákunum, ekki er seinna vænna.
Lið Fram er nú þegar búið að vinna sér sæti í úrslitakeppninni, liðin hafa mæst tvisvar í deildarkeppninni í vetur. Í fyrra skiptið þann 6. nóvember í Framhúsinu og þar sigraði Akureyri örugglega. Seinni leiknum lauk með jafntefli í hörkurimmu hér í Höllinni þar sem Fram jafnaði í leikslok.
Þjálfari Fram er Viggó Sigurðsson sem oft hefur boðið upp á dramatík á hliðarlínunni og þá eru þrír Akureyringar í leikmannahópi Fram. Það eru leikstjórnendurnir Halldór Jóhann Sigfússon sem lengst af lék með KA og Guðmundur Freyr Hermannsson sem lék með Akureyrarliðinu fyrsta tímabilið. Þriðji Akureyringurinn í Framliðinu, Magnús Stefánsson frá Fagraskógi er kominn af stað aftur eftir að hafa verið einstaklega óheppinn í vetur, fingurbrotnað tvívegis og því misst af meirihluta mótsins.
Þá er skyttan og landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason atkvæðamikill í liðinu og í síðasta leik, þegar Fram sigraði FH átti Jóhann Gunnar Einarsson stórleik en hann hefur verið að jafna sig eftir erfið meiðsl í allan vetur.
Lið Akureyrar var hársbreidd frá því að leggja stórlið Vals á útivelli um síðustu helgi og því stefnir allt í hörkuleik á sunnudaginn.
Það var allt á suðupunkti undir lokin þegar liðin mættust síðast.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson