 Það verður nóg að gera um páskana hjá strákunum


| | 3. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarÞrír leikmenn Akureyrar í æfingahópi U-21 árs liðsinsU-21 árs landslið Íslands fer til Hollands um páskana og leikur þar í forkeppni um að komast á heimsmeistaramótið. Heimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari hefur valið 17 manna undirbúningshóp og eru þrír leikmenn úr liði Akureyrar í hópnum, þeir Anton Rúnarsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Oddur Gretarsson. Strákarnir hafa átt fast sæti í hópnum í vetur ásamt fyrrum félögum sínum þeim Sveinbirni Péturssyni og Ásbirni Friðrikssyni.
Andstæðingar íslenska liðsins í riðlinum eru Bretland, Holland og Ungverjaland og verða leikir liðsins sem hér segir: Föstudaginn 10. apríl Ísland - Holland Laugardaginn 11. apríl Ísland - Ungverjaland Sunnudaginn 12. apríl Ísland - Bretland
Annars er æfingarhópurinn sem hér segir:
Markmenn: Ingvar Kr.Guðmundsson, Valur Sveinbjörn Pétursson, HK Birkir Bragason, Selfoss
Aðrir Leikmenn: Anton Rúnarsson, Akureyri Aron Pálmason, FH Ásbjörn Friðriksson, FH Guðmundur Árni Ólafsson, Selfoss Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri Jóhann Karl Reynisson, Fram Oddur Grétarsson, Akureyri Orri Freyr Gíslason, Valur Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK Ólafur Gústafsson, FH Hjálmar Þór Árnason, Víkingur Rúnar Kárason, Fram Þórður Rafn Guðmundsson, Haukar Þröstur Þráinsson, Víkingur Æfingar liðsins í næstu viku verða tilkynntar fljótlega. |