Aðalfundur Akureyri handboltafélags sem var haldinn 30. september 2009 skorar á Bæjarstjórn Akureyrar að ljúka uppsetningu á áhorfendabekkjum í Íþróttahöllinni sem allra fyrst.Einnig beinir fundurinn þeim tilmælum til bæjarstjórnar að leyfðar verði auglýsingar á gólfi Íþróttahallarinnar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar getur ekki orðið við erindinu um bekki í Íþróttahöllina að sinni þar sem ekki er gert ráð fyrir þeim í fjárhagsáætlun. Einnig getur stjórnin ekki orðið við beiðninni um auglýsingar á gólfinu en felur starfsmönnum Fasteigna Akureyrarbæjar að ræða við Akureyri Handboltafélag um að leita annarra leiða við fyrirkomulag auglýsinga.