Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Fram liðið á eftir að springa út í vetur



17. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Árni Stefánsson um næstu andstæðinga Akureyrar

Næstkomandi fimmtudag leikur Akureyri gegn Fram í N1 deildinni og verður leikið í Framheimilinu. Þær fréttir hafa borist að SportTV.is ætli að sýna beint frá leiknum þannig að við förum að setja okkur í stellingar til að fylgjast með útsendingunni.

Það sem af er tímabilinu hefur Fram liðinu ekki gengið eins og menn bjuggust við en liðið er óútreiknanlegt og getur hrokkið í gírinn hvenær sem er. Það er því ljóst að Akureyrarliðið verður að leika með hjartanu og sýna þá baráttu sem það sýndi í seinni hálfleik gegn FH ef ekki á illa að fara.

Með Fram-liðinu leika nokkrir góðkunningjar okkar Akureyringa, eins og Halldór Jóhann Sigfússon leikstjórnandi, Magnús, stórskytta Stefánsson frá Fagraskógi og í haust bættist bróðir hans, Hákon Stefánsson í hópinn en hann var einmitt fyrirliði 2. flokks Akureyrar síðasta tímabil.

Þar á móti hefur Akureyringurinn Guðmundur Freyr Hermannsson yfirgefið Fram og fór fyrir liði Víkings sem komst einmitt í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins með sigri á Aftureldingu í gær.


Það var æsingur í Halldóri Sigfússyni í leik liðanna í fyrra

Lítum á hvað Árni Stefánsson sagði um Fram liðið í upphafi leiktímabilsins.
Fram hefur misst nokkra mjög sterka leikmenn fyrir átökin í vetur. Örvhentu skytturnar Rúnar Kárason og Jóhann Gunnar Einarsson eru horfnar á braut og einnig hornamaðurinn knái Guðjón Drengsson. Fram lék vel á síðasta keppnistímabili og hafnaði í fjórða sæti. Þeir koma til með að vera á svipuðu róli í vetur vegna þess að þau lið sem Viggó Sigurðsson þjálfar eru alltaf líkleg til afreka. Þeir spila góða vörn og agaðan sóknarleik sem getur skilað góðum árangri. Breiddin í leikmannahópnum er ekki mikil en þeir eiga unga og bráðefnilega leikmenn sem eru að koma upp. Fram er með það góðan mannskap að þeir geta strítt öllum hinum liðunum á góðum degi en verða líklega um miðja deild.

Styrkleikar
Helsti styrkleiki Fram er jafnt og agað lið sem spilar skynsaman sóknarleik. Andri Berg Haraldsson, Stefán Stefánsson, Magnús Stefánsson, Halldór Sigfússon og Haraldur Þorvarðarson eru allir góðir leikmenn og munu bera leik liðsins uppi. Liðið getur spilað góða vörn og Magnús Erlendsson markvörður er sterkur þar fyrir aftan. Liðið hefur undanfarin ár skorað mikið úr hraðaupphlaupum og þarf á þeim mörkum að halda í vetur.

Veikleikar
Fram er með ágætt byrjunarlið en litla breidd og ljóst er að það má ekkert út af bregða hjá burðarásum liðsins. Sérstaklega skiptir miklu máli að Magnús í markinu verði heill , ef hann meiðist þá verða þeir í vandræðum. Ef liðið nær sér ekki á strik í varnarleiknum mun það eiga erfitt uppdráttar.

Lykilmaður Andri Berg Haraldsson verður lykilmaður hjá Fram í vetur. Andri er öflugur sóknarmaður sem skorar mikið af mörkum en er einnig ágætur varnarmaður og mun mikið mæða á honum í vetur. Halldór hefur átt við meiðsli að stríða en ef hann heldur sér heilum er hann mikill styrkur, því það eru fáir betri í leikstjórnandastöðunni en hann. Stefán er öflugur í vinstra horninu, Haraldur mikill baráttujaxl á línunni og Magnús er mjög mikilvægur í markinu.

Þjálfarinn segir...
Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram, stefnir ótrauður í hæstu hæðir með sína menn, þrátt fyrir að sterkir leikmenn haf horfið á braut. „Við höfum missti mjög mikilvæga pósta úr okkar liði og eina alvöru viðbótin sem við sóttum í staðinn er rúmenski markmaðurinn (sem nú hefur reyndar verið sendur heim aftur). Það jákvæða í þessu er kannski það að við erum ekkert einir í þeirri stöðu að missa sterka leikmenn og eigum í okkar hópi nokkra mjög góða leikmenn sem koma til með að bera þetta uppi í vetur. Við erum að taka stráka upp úr 2. flokki, mjög efnilega stráka, og þeir eiga eftir að fá fullt af sénsum“, segir Viggó.

„Við komum til með að spila þetta mjög svipað og í fyrra“, segir Viggó þegar hann er spurður út í það hvort mannabreytingar kalli á breytingar á leikskipulaginu. Lið undir stjórn Viggós hafa í gegnum tíðina verið þekkt fyrir það að spila agaðan og sterkan varnarleik og beita skynsemi og þolinmæði í sókninni. „Þetta breytist lítillega, aðallega í vörninni, en sóknarleikurinn verður settur upp á svipaðan hátt. Við komum væntanlega til með að stilla meira upp í 5-1 og 3-3 í vörninni.“

„Við stefnum á það að berjast um titla“, segir Viggó um vonir og væntingar vetrarins. „Deildin verður jafnari en mörg undanfarin ár, það þýðir ekkert að horfa framhjá þeirri staðreynd að hún veikist, en það er hins vegar jákvætt að brotthvarf allra þessara leikmanna gefur ungum leikmönnum pláss og tækifæri. Við stöndum vel að því leyti að reynsluboltarnir okkar eru hörkugóðir leikmenn. Þeir eiga eftir að vega þungt í þessari baráttu“, segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram.


Viggó átti ýmislegt vantalað við dómarana í Höllinni í fyrra

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson