Nú vitum við hvað er í húfi hjá Jóni Heiðari og félögum um helgina
| | 17. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarForkeppni 2. flokks komin á hreintÁ sunnudaginn leikur 2. flokkur Akureyrar í forkeppni um sæti í deild fyrir komandi tímabil. Í fyrri frétt okkar kom fram að við skyldum ekki alveg fyrirkomulagið en nú hefur Arnar Gunnarsson sent okkur skýringar á fyrirkomulaginu.
Alls bárust skráningar á 17 liðum frá 14 félögum en leikið verður í tveimur deildum. Mótanefnd HSÍ ákvað að þau félög sem skráðu tvö lið til keppni þurfi ekki að leika í forkeppninni heldur fari lið 1 beint í 1. deild og lið 2 í 2 .deild. Haukar, Selfoss og Stjarnan sendu inn tvö lið og fá því sæti í 1. deild en Akureyri, Grótta, Fram, FH, HK, ÍBV, ÍR, Valur, Afturelding og Fjölnir leika í forkeppni um sex laus sæti í 1. deildinni.
Leikið verður í þremur riðlum: A riðill: Akureyri, Grótta og Fram B riðill: FH, HK og ÍBV C riðill: ÍR, Valur, Afturelding og Fjölnir
Tvö lið úr hverjum riðli komast í 1. deild en hin liðin ásamt Haukar 2, Selfoss 2, Stjarnan 2 ásamt Herði frá Ísafirði leika síðan í 2. deild.
Leikirnir í riðli Akureyrar verða leiknir sunnudaginn 19. september og verða á Seltjarnarnesi sem hér segir:
Kl. 10.00 Grótta - Fram Kl. 11.00 Akureyri - Grótta Kl. 12.00 Fram – Akureyri.
Við þökum Arnari Gunnarssyni kærlega fyrir að upplýsa okkur um þetta fyrirkomulag. |