Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Verður þetta bikartímabil Akureyrar liðsins?

18. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bikarorusta gegn HK í Kópavogi á þriðjudagskvöldið

Á þriðjudagskvöldið mætast Akureyri Handboltafélag og HK í Eimskipsbikarnum og verður leikið í Kópavogi. Eins og mönnum er í fersku minni þá mættust liðin á sama stað í fyrstu umferð N1 deildarinnar og þar fór Akureyri með öruggan tólf marka sigur.

Það verður að segjast að HK piltar hafa heldur betur tekið sig saman í andlitinu eftir þessa niðurlægingu, þeir tóku Fram í kennslustund í næsta leik 33-29 og í síðustu umferð unnu þeir Val sannfærandi 28-33 á útivelli.

HK mun því örugglega leggja allt kapp á að hefna grimmilega á þriðjudaginn fyrir tapið gegn Akureyri og eins gott fyrir okkar menn að mæta einbeittir til leiks.

Í áðurnefndum fyrsta leik liðanna reyndist Ólafur Bjarki Ragnarsson okkur illviðráðanlegur en hann skoraði 12 mörk í þeim leik. Ólafur skoraði 9 mörk gegn Fram og 3 gegn Val þannig að Akureyrarvörnin þarf að leggja megináherslu á að stöðva hann.

Góðkunningi okkar, línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson er sömuleiðis leikmaður sem ekki má fá að leika lausum hala en hann hefur skorað 20 mörk fyrir HK í þessum þremur leikjum. Þriðja markamaskína þeirra HK manna er Bjarki Már Elísson en hann er með 16 mörk í þremur leikjum.

Akureyrarliðið hefur sýnt það í upphafsleikjunum að það býr mikið í liðinu og innanborðs eru reynsluboltar sem vita hvað þarf til að ná árangri. Það er einmitt það sem þarf í bikarleik eins og þessum þar sem tap þýðir einfaldlega að liðið er úr leik í keppninni. Gengi liðsins í bikarkeppninni hefur ekki verið sem skyldi á undanförnum árum, í fyrra datt liðið út í fyrsta leik eftir æsispennandi leik gegn FH en árið þar á undan féll liðið út í 16 liða úrslitum, einnig gegn FH.

Við viljum ná lengra í bikarnum í ár og því mikilvægt að mæta grimmum HK ingum af fullum krafti og yfirstíga þennan fyrsta áfanga að settu marki.

Leikurinn hefst klukkan 18:30 og því miður verður hann hvorki sýndur á RÚV eða SportTV.is en við erum að vinna í því að bjóða upp á textalýsingu hér á síðunni. Nánar um það á þriðjudaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson