Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Atli segir sína menn vera í góðu standi fyrir leikinn

18. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Atli Hilmarson: Ágætlega bjartsýnn fyrir FH leikinn

Í nýjasta tölublaði Vikudags ræðir Þröstur Ernir Viðarsson, blaðamaður við Atla Hilmarsson þjálfara Akureyrar um laugardagsleikinn gegn FH ingum:

„Við erum á fínu skriði og þessi leikur leggst vel í mig. Ég held að það skipti ekki öllu máli hvort við séum að mæta FH á útivelli eða Aftureldingu á heimavelli. Ef við náum okkar leik þá erum við í góðum málum.

Við ætlum bara að halda okkar striki, ég veit alveg hvað þessir strákar geta og þeir eru í fínu standi. Það hefur hjálpað okkur heilmikið að við erum ekki að glíma við nein alvarleg meiðsli.

Það er ekkert annað í myndinni en að halda sigurgöngunni áfram, bæta okkar leik og hugsa um okkur fyrst og fremst. Ef við náum að leika áfram eins og við höfum gert í upphafi móts eru okkur allir vegir færir,“ segir Atli.

Við minnum svo enn og aftur á að leikur FH og Akureyrar hefst klukkan 15:45 á laugardaginn en útsending RÚV hefst klukkan 15:30.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson