Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það eru þó allir sammála um að þetta hafi verið frábær handboltaleikur







26. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hvað sögðu menn eftir leik Akureyrar og HK?

Það er alltaf fróðlegt að heyra álit leikmanna og þjálfara eftir leiki og ekki síst eftir háspennuleik eins og við urðum vitni að í gærkvöldi. Hér á eftir er samantekt á efni sem við höfum fundið á hinum ýmsu fréttamiðlum:

Þröstur Ernir Viðarsson á Vikudegi ræddi við Atla Hilmarsson sem var að vonum sáttur í leikslok:

Atli Hilmarsson: Ekki hægt að tapa með fulla höll
„Við þurftum að hafa mikið fyrir þessu og HK er náttúrulega með frábært lið,“ sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar eftir eins marks sigur liðsins gegn HK í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld N1-deildinni. Akureyri er því enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar, en tæpara mátti það ekki vera í kvöld þar sem lokatölur urðu 32:31.

„Við vorum alltof værukærir í fyrri hálfleik þar sem við gátum oft komist í fimm mörk en fengum mörk á okkur í bakið. Við vorum að missa boltann illa og HK refsaði okkur með hraðaupphlaupum.

Í seinni hálfleik voru við aftur komnir fimm mörkum yfir en vorum að fá rosalega mörg mörk á okkur á línunni sem við náðum ekki að stoppa. Við náum hins vegar að rífa okkur upp og liðið sýnir frábæran karakter í lokin að klára þetta.“ Atli viðurkennir að það hafi farið um hann á tímabili í leiknum en norðanmenn lentu tveimur mörkum undir seint í seinni hálfleik eftir að hafa haft forystu allan leikinn.

„Það fór um mig eiginlega allan leikinn enda frábært lið sem við vorum að mæta,“ sagði Atli, sem hrósaði stuðningsmönnum Akureyrarliðsins sem voru frábærir í kvöld, en alls voru 1250 manns í Höllinni sem létu vel í sér heyra.
„Stuðningurinn frá áhorfendum var frábær í kvöld og það var ekki hægt að tapa með fulla höll,“ sagði Atli Hilmarsson.


Þrettán hundruð áhorfendur takk!

Andri Yrkill Valsson blaðamaður á mbl ræddi við Atla og Heimi Örn Árnason

Atli Hilmarsson: Fólkið svaraði kallinu
„Ég talaði um það eftir síðasta leik að ég vonaðist eftir fullri Höll í næsta leik, ef ekki núna – hvenær þá, og fólkið svaraði svo sannarlega kallinu og sýndi frábæran stuðning,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir enn einn sigur norðanmanna í N1-deildinni.

„Mér fannst þetta frábær leikur þar sem mættust tvö frábær lið,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar.
„Það var gaman að sjá hvað leikurinn var hraður en þó var svolítið mikið um mistök á báða bóga. En mér finnst það ekki skipta máli þar sem leikurinn hafði upp á svo mikið að bjóða. Við hefðum átt að ná meira forskoti í fyrri hálfleik en við fengum alltaf mark í bakið og misstum forskotið niður þannig. Okkur gekk mjög illa að eiga við Atla, línumann HK, í síðari hálfleik auk þess sem markvarslan datt niður um tíma. En við komum á endanum til baka, markvarslan hrökk aftur í gang og í kjölfarið snerist leikurinn við. Við höfum ekki oft lent í þeirri stöðu að vera undir eftir að hafa haft gott forskot en við sýndum úr hverju við erum gerðir og enduðum leikinn vel.“

Heimir Örn Árnason: Sýndum frábæran karakter
Fyrirliðinn Heimir Örn Árnason var frábær og hefur stjórnað sóknarleik Akureyringa eins og herforingi. Heimir Örn vissi þó ekki alveg í hvorn fótinn hann ætti að stíga eftir leikinn.
„Ég er mjög sáttur við sigurinn en ég finn fyrir blendnum tilfinningum. Ég tek ofan fyrir HK-ingum þar sem þeir tættu í sig vörnina hjá okkur og mér finnst við hafa verið teknir í bólinu varnarlega séð. Hann tók mig mjög illa línumaðurinn hjá þeim og ég læt það ekki koma fyrir aftur. Það leit ekki vel út þegar við vorum tveimur mörkum undir þar sem við vorum mjög stirðir sóknarlega en við sýndum frábæran karakter með þessum sigri og mér finnst hrikalega vel gert hjá okkur að vinna miðað við hvernig staðan var orðin,“ sagði Heimir.

Andri Yrkill ræddi við Erling Richardsson þjálfara HK og línumanninn Atla Ævar Ingólfsson

Erlingur Richardsson: Mjög gaman að koma hingað norður að spila
Erlingur Birgir Richardsson, þjálfari HK, var mjög rólegur að leik loknum þrátt fyrir ósigurinn.
„Spilamennskan var í heild yfir ágæt þrátt fyrir nokkra kafla í leiknum þar sem við hefðum átt að gera betur. Markmiðið var að stríða toppliðinu þar sem við vorum í öðru sæti fyrir leikinn og höfðum allt að vinna. Strákarnir stóðu sig mjög vel, fóru eftir því sem við lögðum upp með og reyndu allt sem þeir gátu til að sigra,“ sagði Erlingur við Morgunblaðið eftir leikinn.


Þjálfarar HK þeir Kristinn Guðmundsson og Erlingur Richardsson

HK-ingar eru nýkomnir frá Rússlandi þar sem þeir kepptu við Kaustik Volgograd í Evrópukeppni bikarhafa. Erlingur segir þó að liðið hafi ekki sýnt nein þreytumerki þrátt fyrir mikið ferðalag.
„Nei, alls ekki. Við höfum sagt við strákana að ef þeir ætla að verða góðir íþróttamenn þurfa þeir að ferðast mikið þannig að það var ekkert að draga okkur niður. Við erum í þessu til að skemmta okkur og bæta okkur í handbolta og mér finnst liðið halda áfram að sýna framfarir. Við stóðum okkur vel á sterkum útivelli og börðumst fram á síðustu sekúndu sem sýnir hvað við erum með sterkt lið. Núna höldum við svo bara einbeittir í næsta leik,“ sagði Erlingur.

Hann hrósaði áhorfendum mikið enda hefur stemningin sjaldan verið eins góð þar sem um 1.250 manns troðfylltu Íþróttahöllina á Akureyri. „Stuðningur áhorfenda var frábær og það er mjög gaman að koma hingað norður að spila. Við vorum alveg tilbúnir í þetta og sýndum ekkert taugatitring gagnvart öllum áhorfendunum,“ sagði Erlingur.

Atli Ævar Ingólfsson: Völdum færin ekki vel
„Það var léleg ákvörðunartaka í sókninni í lokin sem réð úrslitum þar sem við völdum færin ekki nægilega vel,“ sagði línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson eftir ósigur HK gegn Akureyri fyrir norðan. „Við vorum klaufar þar sem við vorum komnir yfir og með leikinn í okkar höndum en klúðrum því. Það var mikið stress í okkur í fyrri hálfleik sem ég skil ekki alveg. En við náðum að róa okkur niður í hálfleik og sýndum hvað við getum í þeim síðari. Við vorum hreint út sagt mjög óheppnir að tapa þessum leik.“


Atli Ævar Ingólfsson reyndist sínum eldri félögum erfiður

Hjalti Þór Hreinsson blaðamaður visir.is og Fréttablaðsins spjallaði sömuleiðis við ýmsa aðila:

Atli Hilmarsson: Sigureðlið er til staðar
„Við áttum þetta inni frá Sveinbirni,“ sagði þjálfarinn Atli Hilmarsson kampakátur eftir 32-31 sigur Akureyrar á HK. Akureyri vann 32-31 en Sveinbjörn Pétursson varði frábærlega undir lokin og lagði grunninn að sigri eftir að HK hafði verið yfir

„Sveinbjörn hafði ekki varið vel í seinni hálfleik en ég vissi að þetta kæmi hjá honum,“ sagði Atli og brosti.

„Ég er ánægður með baráttuna í strákunum. Við klárum þetta vel undir lokin, við spiluðum ágætlega tveimur færri líka. Ég hefði þó viljað klára þetta fyrr, við gáfum þeim marga bolta í fyrri hálfleik.
Forystan okkar var fljót að hverfa en það er bara frábært að halda áfram á sigurbraut. Það er sigureðli í þessum strákum sem við erum að kalla fram,“ sagði Atli.

Heimir Örn Árnason: Þetta sýnir bara styrk okkar
Heimir Örn var besti maður Akureyrar, hann átti frábæran leik í vörn og sókn. „Það var mikið um að vera í lokin en við höfðum alltaf trú á þessu. Við vorum andlega skrítnir síðasta korterið og sóknin var hæg eins og margir hafa talað um.
Ég tek ofan fyrir HK sem spilaði mjög vel. Þeir voru hrikalega góðir, en við unnum samt. Þetta sýnir bara styrk okkar,“ sagði Heimir. „Þetta eru blendnar tilfinningar fyrir mig, ég var góður í sókn en slakur í vörn, en sigur er sigur. Ég stóð mig vel en línumennirnir gerðu mjög vel í sókninni.
Ég er smá svekktur að spila ekki betur í seinni hálfleik en andskotinn hafi það, þýðir það nokkuð þegar maður vinnur svona?“ spurði Heimir.

Hjalti ræddi við Daníel Berg Grétarsson leikstjórnanda HK

Daníel Berg: Heyrðum ekki í hvor öðrum inni á vellinum - 1300 manns í Höllinni á Akureyri
„Þetta hefði getað dottið hvoru megin sem var en þeim tókst að klára þetta. Þeir voru bara sterkari undir lokin,“ sagði sársvekktur Daníel Berg Grétarsson eftir leikinn gegn Akureyri í kvöld.


„Við tókum hræðilega ákvörðun undir lokin þegar rétthendur maður fer inn úr hægra horninu. Við höfðum verið að spila skynsamlega fram að því. Oft þarf lítið til að snúa leikjum og eftir þetta datt allt með þeim“, sagði Daníel.

Hann gat skorað undir lokin en vörn Akureyrar varði skot hans á lokasekúndunni.
„Ég hélt að við myndum klára þá eftir að við náðum tveggja marka forystu þegar lítið var eftir. Þetta er mjög svekkjandi,“ sagði Daníel sem fannst umgjörðin þó frábær.

„Við gátum ekki talað saman inni á vellinum, slíkur var hávaðinn. Við þurftum bara að gefa merki. Það er langt síðan maður hefur upplifað svona og þetta gerist ekki oft á Íslandi,“ sagði Daníel en tæplega 1300 manns studdu Akureyringa dyggilega í kvöld.

Að lokum ræddi Hjalti við Erling Richardsson þjálfara HK

Erlingur Richardsson: Forréttindi að fá að spila í þessum hávaða
„Mér fannst dómararnir leyfa þeim fullmikið undir lokin en svona er þetta. Leikurinn þróaðist þannig að ég hefði verið sáttur með jafntefli en það voru forréttindi að fá að spila í þessum hávaða,“ sagði Erlingur Richardsson þjálfari HK en leikmenn HK sögðust eftir leikinn ekki hafa heyrt hver í öðrum inni á vellinum, slíkur var stuðningur áhorfenda.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson