Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Gulli, Atli, Guðmundur, Bjarni og Sveinbjörn - til hamingju









29. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyringar áberandi í úrvalsliði HSÍ

Nú í hádeginu var birt val HSÍ á úrvalsliði fyrstu sjö umferða N1 deildar karla. Eins og við er að búast þá koma leikmenn Akureyrar Handboltafélags verulega við sögu enda liðið verið óstöðvandi til þessa. Þrír leikmenn Akureyrar eru í úrvalsliðinu, þeir Sveinbjörn Pétursson markvörður, Guðmundur Hólmar Helgason vinstri skytta og Bjarni Fritzson hægra horninu.

Auk þess er Atli Hilmarsson besti þjálfarinn og Guðlaugur Arnarsson besti varnarmaðurinn. Við óskum þeim öllum til hamingju með viðurkenningarnar og frábæran árangur. En við erum bara rétt að byrja og heilmikið eftir af tímabilinu.

Stórskyttan Ólafur Bjarki Ragnarsson úr HK var valinn besti leikmaður umferðanna.

Heildarniðurstaðan í vali HSÍ er sem hér segir:

Úrvalslið umferða 1-7:
Markvörður: Sveinbjörn Pétursson, Akureyri
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, HK
Vinstri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri
Miðjumaður: Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram
Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri
Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK

Besti þjálfarinn: Atli Hilmarsson, Akureyri
Besti varnarmaðurinn: Guðlaugur Arnarsson, Akureyri
Besta umgjörðin: FH

Bestu dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson

Smelltu til að fá stærri mynd
Hópurinn samankominn í dag. Mynd: Vilhelm/visir.is

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson