Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Við óskum Stefáni Guðnasyni til hamingju með nafnbótina

21. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stefán Guðnason leikmaður marsmánaðar 2011

Það er ekki seinna vænna að birta niðurstöður úr vali stuðningsmanna á leikmanni marsmánaðar. Þátttakan var mikil og ljóst að margir eru duglegir að senda atkvæði á sína menn. Það var mjótt á munum að þessu sinni en markvörðurinn sívinsæli Stefán Guðnason fór með nauman sigur að þessu sinn en hann fékk 75 atkvæði eða 17,3% greiddra atkvæða.

Allir leikmenn fengu atkvæði en alls skiluðu sér 434 atkvæði. Bjarni Fritzson kom rétt á hæla Stefáns með 71 atkvæði, Jón Heiðar Sigurðsson hlaut 65 atkvæði og hnífjafnir í 4.-5. sæti voru þeir Oddur Gretarsson og Þorvaldur Þorvaldsson með 47 atkvæði hvor.


Eins og sjá má þá er ekki mikill munur á efstu mönnum

Við óskum Stefáni Guðnasyni til hamingju með nafnbótina, hann hefur svo sannarlega átt magnaðar innkomur í leiki tímabilsins. Stefán er án efa einn alvinsælasti maður hópsins, jafnt innan leikmannahópsins sem og meðal stuðningsmanna enda einstaklega jákvæður og skemmtilegur einstaklingur. Þess má geta hér að Stefán var sömuleiðis kjörinn leikmaður desembermánaðar

Við þökkum öllum sem tóku þátt í kjörinu, næsta verkefni verður svo að kjósa leikmann aprílmánaðar, fylgist með hér á síðunni.

Hér fáum við svo nokkrar svipmyndir af meistara Stefáni Guðnasyni.


Fyrir sigurleikinn gegn Val 3. mars


Í leiknum gegn Haukum 24. mars


Deildarmeistaratitillinn í höfn eftir sigur á HK 28. mars


Stefán bíður spenntur eftir að fá deildarmeistarabikarinn 31. mars

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson