Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn og Heimir þurftu að játa sig sigraða í gær

5. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

FH Íslandsmeistari eftir sigur á Akureyri í leik 4

Akureyri Handboltafélag tapaði í gær fyrir FH í Kaplakrika 28-24. FH tryggði sér með sigrinum Íslandsmeistaratitilinn með því að sigra Akureyri 3-1 samanlagt í leikjunum 4 sem spilaðir voru. Akureyri Handboltafélagið óskar FH að sjálfsögðu til hamingju með titilinn, en barátta liðanna um titilinn var frábær áhorfs og er klárlega lyftistöng fyrir íslensku deildina.

Vissulega leiðinlegt að tímabilið skuli hafa endað með tapi en þegar litið er yfir tímabilið í heild sinni sést að liðið stóð sig frábærlega. Besti árangur Akureyrar Handboltafélags staðreynd, fyrsti titillinn kom í hús þegar liðið tryggði sér Deildarmeistaratitilinn, en þá má ekki gleyma því að liðið lék til úrslita í öllum keppnum vetrarins, það er að segja í Deildarbikarnum þar sem liðið þurfti að játa sig sigrað gegn FH. Þá komst liðið í úrslitaleik Bikarkeppninnar sem er að margra mati stærsti leikur tímabilsins en því miður sigruðu Valsmenn þann leik.

Það liggur í augum uppi að þetta tímabil var magnað og menn hljóta að mæta enn grimmari til leiks og reynslunni ríkari á næsta tímabili. Atli Hilmarsson er að vinna frábæra vinnu með liðið og mun halda áfram sem er gríðarlega jákvætt.

Þá má ekki gleyma því að í bæði skiptin sem KA varð Íslandsmeistari í handbolta þá þurfti liðið að upplifa tap í úrslitarimmu árið áður þannig að við trúum því bara og treystum að Akureyri Handboltafélag klári dæmið eftir eitt ár!

Við endum þetta svo á umfjöllun Vikudags um leikinn í gær:

Stórleikur Sveinbjörns dugði ekki til - FH Íslandsmeistari
FH er Íslandsmeistari í handbolta karla eftir fjögurra marka sigur á Akureyri í fjórða leik liðanna í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur, 28:24 en FH vann einvígið 3:1. Ólafur Guðmundsson gerði gæfumuninn fyrir FH í kvöld í sóknarleiknum með 8 mörk og Daníel Freyr Andrésson átti góða innkomu mark heimamanna. Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson var hins vegar maður leiksins hjá Akureyri með 20 skot varin í leiknum, þar af 15 í fyrri hálfleik.

Akureyri náði hins vegar ekki að nýta sér stórleik Sveinbjörns í markinu og FH-ingar fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í 19 ár og eru einfaldlega besta lið landsins í dag.

Fyrri hálfleikurinn var hníjafn en FH-ingar voru þó ávallt skrefinu á undan. FH skoraði fyrstu tvö mörkin en forystan var aldrei meiri en tvö mörk. Það var einum manni að þakka, Sveinbirni Péturssyni markverði Akureyrar, sem átti hreint út sagt magnaðan fyrri hálfleik og varði 15 skot og hélt Akureyringum á floti.

Akureyri komst yfir í stöðunni 8:7 um miðjan hálfleikinn en FH komst yfir að nýju 11:8. FH-ingar áttu betri endasprett og náðu þriggja marka forystu þegar skammt var til leikhlés, þar sem Ólafur Guðmundsson var í miklu ham en hann skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik og dró vagninn í sóknarleik heimamanna.

Varnarleikur beggja liða var góður en Akureyringar lentu í miklum brottrekstra vandræðum og við það opnaðist vörn gestanna.

Staðan í hálfleik, 13:11, FH í vil.

FH komst þremur mörkum yfir snemma í fyrri hálfleik, 15:12, en Akureyringar hleyptu þeim ekki of langt fram úr sér og jöfnuðu metin í 17:17 þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og allt í járnum.

FH náði þriggja marka forystu á ný í stöðunni, 21:18, en þá komu þrjú mörk í röð hjá Akureyri sem jafnaði í 21:21 þegar níu mínútur voru eftir og næstu mínútur stál í stál. Heimir Örn Árnason tók sóknarleik Akureyrar í sínar hendur en hann skoraði fimm mörk í leiknum, öll í seinni hálfleik, og skoraði góð mörk á mikilvægum augnablikum.

Atli Rúnar Steinþórsson skoraði tvö mörk í röð fyrir FH þegar skammt var eftir og staðan 25:23. Daníel Einarsson fékk tækifæri á að minnka muninn í eitt mark þegar ein hálf mínúta var eftir en Daníel Freyr varði í markinu og Ólafur Gústafsson kom FH í þriggja marka forystu, 26:23, og staðan vænleg fyrir heimamenn.

FH-ingar létu ekki forystuna af hendi og Ásbjörn Friðriksson skoraði síðasta mark leiksins og fjögurra marka sigur FH í höfn.

Lokatölur, 28:24.

Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 8, Heimir Örn Árnason 5, Bjarni Fritzson 4, Oddur Gretarsson 4 (1 úr víti), Daníel Einarsson 1, Hreinn Þór Hauksson 1, Hörður Fannar Sigþórsson 1.

Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 20. Mörk FH: Ólafur Guðmundsson 8, Ásbjörn Friðriksson 7 (2 úr víti), Baldvin Þorsteinsson 4, Atli Rúnar Steinþórsson 4, Ólafur Gústafsson 3, Halldór Guðjónsson 1, Örn Ingi Bjarkarson 1.

Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 11, Pálmar Pétursson 6.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson