Ásgeir, Geir og Guðmundur verða í Svíðþjóð næstu daga
| | 3. júlí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarGuðmundur, Ásgeir og Geir til Gautaborgar með U-19 í dagÍ dag, sunnudag hélt U-19 ára landslið Íslands til Gautaborgar í Svíþjóð en liðið hefur leik á European Open mótinu á morgun. Eins og við greindum frá fyrir nokkru þá eru þrír leikmenn Akureyrar Handboltafélags í Íslenska hópnum, þeir Guðmundur Hólmar Helgason, Ásgeir Jóhann Kristinsson og Geir Guðmundsson.
Það verður nóg að gera strax á morgun en þá spila strákarnir tvo leiki, gegn Rússum og Finnum en leikjadagskráin er sem hér segir:
Mánudagur 4.júlí kl.12.00 Ísland - Rússland kl.17.00 Ísland - Finnland
Þriðjudagur 5.júlí kl.09.15 Ísland - Holland
Miðvikudagur 6.júlí kl.07.00 Ísland - Belgía
Þeim sem vilja fylgjast með gangi mála á mótinu bendum við á vefsíðu mótsins sem ætti að opnast ef smellt er hér. |