Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður Fannar fór meiddur af velli eftir að leikið frábærlega





29. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

FH sótti tvö stig í Íþróttahöllina

FH gerði góða ferð norður yfir heiðar er liðið lagði Akureyringa að velli með fjórum mörkum í Höllinni í kvöld en lokatölur urðu 20-24. Akureyri byrjaði leikinn frábærlega og komst í 5-0 en FH-ingar skoruðu ekki mark fyrstu níu mínúturnar. Akureyri hélt forystunni til hálfleiks en eftir það hafði FH betur á öllum vígstöðum. Daniel Freyr Andrésson varði 23 skot í marki FH og var besti maður vallarins en einnig átti fyrirliðinn Baldvin Þorsteinsson flottan leik fyrir FH-inga. Fyrsti sigur Íslandsmeistaranna staðreynd og sigurinn fyllilega verðskuldaður.

Þessi umfjöllun er fengin hjá Þrestir Erni Viðarssyni blaðamanni Vikudags.

Akureyri byrjaði leikinn frábærlega fyrir framan fjölmarga áhorfendur í Höllinni sem létu vel í sér heyra. Það gekk hreinlega allt upp hjá heimamönnum fyrstu mínúturnar og eftir sjö mínútna leik var staðan 5-0. Sveinbjörn Pétursson lokaði markinu og það skipti engu þótt FH fengi vítaköst, Sveinbjörn tók þau líka en hann varði sex skot á fyrstu tíu mínútu.


Sveinbjörn fór á kostum í markinu og ver hér annað af tveim vítum frá Baldvin Þorsteinssyni

Á sama tíma var markvarslan engin hinumegin. Það tók FH-inga níu mínútur tæpar að skora fyrsta markið en það virtist vera það sem þurfti því eftir að ísinn var brotinn kom góður kafli hjá Hafnfirðingum. Daníel Freyr komst í gang í markinu og Baldvin Þorsteinsson dró vagninn í sókninni.

FH skoraði þrjú mörk í röð og breytti stöðunni í 5-3. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan 6-4 fyrir heimamenn en þá hafði Akureyri ekki skorað í heilar níu mínútur eða síðan staðan var 5-0. FH tókst að jafna leikinn í fyrsta sinn í stöðunni 10-10 á 27. mínútu en norðanmenn leiddu með einu marki í hálfleik, 12-11.

FH byrjaði seinni hálfleikinn líkt og Akureyri byrjaði þann fyrri og komust gestirnir í fyrsta sinn yfir í leiknum í stöðunni 13-14 eftir 36 mínútna leik og síðan tveimur mörkum yfir 14-16 þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Mikill viðsnúningur en svo virtist sem mesti vindur væri farinn úr heimamönnum eftir frábæra byrjun. FH náði þriggja marka forystu um miðjan seinni hálfleik, 15-18, og nú varð það Daníel Freyr sem lokaði markinu fyrir framan sterka vörn FH-inga og sama tíma lak allt inn hjá Sveinbirni hinumegin. Akureyringar misstu línumanninn Hörð Fannar Sigþórsson útaf um miðjan seinni hálfleikinn og það veikti liðið töluvert varnarlega. FH náði síðan fjögurra marka forystu í stöðunni 15-19 og komst fimm mörkum yfir í stöðunni 16-21 þegar sjö mínútur voru eftir og hlutirnir litu vel út fyrir FH.


Oddur Gretarsson var óvenju rólegur í markaskorun í kvöld

Þegar þrjár mínútur voru eftir skoraði Baldvin Þorsteinsson 24. mark FH og þar með var sigurinn í höfn. Tvö mikilvæg stig í hús hjá FH en það er ljóst að Akureyri þarf að þétta hópinn saman. Útlit er fyrir að Hörður Fannar Sigþórsson verði eitthvað frá vegna meiðsla og þá eru Heimir Örn Árnason fyrirliði og Daníel Einarsson fyrir á sjúkralistanum en norðanmenn söknuðu Heimis mikið í dag.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzon 5, Geir Guðmundsson 4, Oddur Gretarsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Guðmundur Hólmar Helgason 2 og Jón Heiðar Sigurðsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 14 skot (þar af tvö víti) og Stefán Guðnason 5 varin

Mörk FH: Baldvin Þorsteinsson 8 (1 úr víti) Örn Ingi Bjarkarson 5, Ragnar Jóhannsson 3, Ólafur Gústafsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 2, Andri Berg Haraldsson 2, Ari Magnús Þorgeirsson 1, Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 23.


Sveinbjörn var valinn besti maður Akureyrarliðsins í leiknum




Baldvin Þorsteinsson var valinn besti maður FH liðsins

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson