Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Skemmtun sem enginn má missa af

14. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Herrakvöld Akureyrar Handboltafélags á föstudaginn

Þeir fjölmörgu sem komu á herrakvöldið fyrir ári síðan geta nú andað léttara því að nú endurtökum við leikinn á föstudagskvöldið 17. febrúar, að þessu sinni á Hótel KEA. Við getum lofað glæsilegri skemmtun og ekki spillir frábær matur, að þessu sinni er forréttur og þriggja rétta gourmet máltíð.
Miðaverði er stillt í hóf og kostar miðinn aðeins 4.900 krónur.

Ýmiss skemmtiatriði verða í boði og fjölmargir happdrættisvinningar verða dregnir út.

Veislustjóri verður enginn annar en Svavar Alfreð Jónsson en ekki hefur fengist uppgefið hver verður aðalræðumaður kvöldsins – nafni hans er haldið leyndu þar til á föstudagskvöldið.

Skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 19:30 á Hótel KEA með fordrykk. Miðar eru seldir í forsölu á veitingastaðnum Bryggjunni en allar nánari upplýsingar gefur Sigurður í síma 866 9958.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla stuðningsmenn til að fjölmenna, þetta gerist bara einu sinni á ári.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson