Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður örugglega barist til síðasta blóðdropa gegn Fram

22. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fram - Akureyri í beinni á SportTV.is

Eftir frábæran leik gegn FH síðastliðinn mánudag heldur baráttan áfram á föstudaginn. Það eru tvær umferðir eftir af sjálfri deildarkeppninni og óhætt að segja að sannkölluð úrslitastemming ríki í öllum leikjunum, slík er spennan um að komast í úrslitakeppnina.

Akureyri sækir Fram heim á föstudaginn og verður leikið í Safamýrinni klukkan 19:30 en allir leikir umferðarinnar fara fram á sama tíma. Með sigri í leiknum tryggir Akureyri sér sæti í úrslitakeppninni og því er ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að leggja leið sína í Fram húsið og skapa sömu stemmingu og strákarnir eru vanir hér á heimavelli.

SportTV.is mun sýna leikinn í beinni á vefnum og munum við setja upp tengingu við útsendinguna hér á heimasíðunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson