Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Ekki þarf að efast um mikilvægi áhorfenda í leik sem þessum
19. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
Stórleikur Akureyrar og FH í Höllinni á föstudaginn
Einvígi Akureyrar og FH hófst með miklum látum í fyrsta leik þar sem þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit, eins marks sigur FH staðreynd. En fjörið heldur áfram í Íþróttahöllinni á föstudaginn en leikur liðanna hefst klukkan 20:00.
Mikilvægar upplýsingar fyrir áhorfendur
Athugið að stuðningsmannaskírteinin og ársmiðakort gilda ekki sem aðgöngumiði á leiki úrslitakeppninnar og því þurfa allir að greiða aðgangseyri að þessu sinni. Sama á við um handboltaiðkendur í KA og Þór, við getum ekki afhent boðsmiða á úrslitakeppnisleikina.
Fyrir vikið má búast við auknu álagi í miðasölunni fyrir leik og það er því vinsamleg
ábending til áhorfenda að hafa með sér aðgangseyrinn í reiðufé
þar sem slíkur greiðslumáti er mun fljótlegri en kortaviðskiptin.
Eldri en 15 ára greiða 1.500 krónur en yngri greiða 500 krónur.
Kaffiveitingar verða fyrir leik og í hálfleik fyrir handhafa stuðningsmannaskírteina. Líkt og í síðasta heimaleik (gegn Val) verður aðstaða stuðningsmannaklúbbsins væntanlega niðri á fyrstu hæð þar sem ýmislegt er um að vera í Höllinni í tengslum við Andrésar Andarleikana.
Þá geta handhafar stuðningsmannaskírteinanna gengið að fráteknum sætum sínum eins og vanalega.
Nú er bara að fjölmenna í Höllina og halda uppi þeirri frábæru stemmingu sem hefur svo sannarlega vakið athygli þannig að Akureyri hefur eitt félaga fengið viðurkenningar HSÍ fyrir umgjörð leikjanna í vetur.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson