Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Dóri og félagar eru ekki kominir í sumarfrí
26. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Leikur við Gróttu þann 1. maí
Þó að meistaraflokkur Akureyrar hafi lokið keppni að sinni þá er ekki þar með sagt að félagið sé lagst í dvala. Öðru nær þá er 2. flokkur í harðri baráttu í úrslitakeppninni og leikur undanúrslitaleik gegn Gróttu þriðjudaginn 1. maí og verður leikurinn í Íþróttahöllinni klukkan 15:30.
Akureyri varð deildarmeistari og á því heimaleikjaréttinn gegn Gróttu sem hafnaði í 4. sæti deildarinnar. Athugið að það er aðeins einföld umferð og því er ekkert nema sigur sem kemur til greina.
Í átta liða úrslitunum sigraði Akureyri lið FH 28-26 en Grótta sigraði Selfyssinga 39-31.
Akureyri og Grótta mættust tvisvar í deildinni í vetur, Akureyri vann heimaleikinn stórt 41 – 29 en útileikurinn tapaðist hins vegar með einu marki 24-23. Þar að auki mættust liðin í bikarkeppninni í vetur og þar fór Grótta með eins marks sigur hér á Akureyri 30 – 31. Þar með fékk þátttaka Akureyrarstráka í bikarnum snöggan enda í leik sem varð heldur betur sögulegur.
Það er því næsta víst að Akureyri á harma að hefna gegn Gróttu og enn á ný er kallað eftir stuðningi áhorfenda sem hafa staðið sig frábærlega á leikjum 2. flokks í vetur.
Akureyri fagnaði deildarmeistaratitlinum - nú þarf að berjast fyrir þeim stóra!
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson