Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Besti leikmaður tímabilsins Bjarni Fritzson

6. maí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lokahóf Akureyrar Handboltafélags 2012

Eins og venja er var settur endapunktur leiktímabilsins með lokahófi þar sem leikmenn, þjálfarar og allir þeir fjölmörgu sem koma að starfinu gerðu sér glaðan dag. Það spillti ekki gleðinni að strákarnir í 2. flokki færðu félaginu fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins.

Veislan fór fram í Íþróttahöllinni þar sem Sigurður Jóhannsson á Strikinu hafði veg og vanda með glæsilegri grillveislu. Reyndar hófst dagskráin aðeins síðar en ætlað var á meðan beðið var eftir að Íslandsmeistararnir skiluðu sér í bæinn með flugi með bikarinn.

Það var létt yfir mannskapnum og fjölmargir stigu í pontu og ávörpuðu viðstadda. Atla Hilmarssyni voru þökkuð frábær störf undanfarin tvö ár og óskað velfarnaðar í viðfangsefnum sínum í framtíðinni.

Að hefðbundnum hætti var tilkynnt um ýmsar viðurkenningar til leikmanna eftir tímabilið
Mestar framfarir: Geir Guðmundsson
Besti sóknarmaðurinn: Bjarni Fritzson
Besti varnarmaðurinn: Hörður Fannar Sigþórsson
Besti leikmaðurinn: Bjarni Fritzson
Besti leikmaður 2. flokks: Bergvin Þór Gíslason


Verðlaunahafarnir tímabilið 2011-2012

Eins og við var að búast voru menn í hátíðarskapi yfir framlagi 2. flokks og fékk Jóhann Gunnar Jóhannsson, þjálfari þeirra blómvönd en hann er fyrsti þjálfari félagsins til að skila Íslandsmeistaratitli.


Hlynur Jóhannsson og Hannes Karlsson færðu Jóhanni Gunnari blómvönd

Hér er hægt að skoða fleiri myndir frá hófinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson