Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Engin verðlaun í Tyrklandi

8. júlí 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-20: Tap gegn Sviss í síðasta leik

Ísland tapaði í dag fyrir Sviss 22 - 28. Sviss hafði yfirhöndina allan leikinn. Í stöðunni 4 - 5 fyrir Sviss komu sex svissnesk mörk í röð og sá munur hélst í hálfleik en þá var staðan 8 - 15.

Íslenska liðið átti fínan sprett í upphafi seinni hálfleiks og minnkaði muninn í tvö mörk 18 - 20 þegar þrettán mínútur voru til leiksloka. Þá komu fjögur svissnesk mörk í röð og þeir lönduðu öruggum sigri 22 - 28.

Guðmundur Hólmar sem meiddist í síðasta leik kom ekkert við sögu í leiknum en Geir Guðmundsson skoraði 5 mörk í leiknum.

Mörk Íslands:
Garðar Sigurjónsson, 6
Geir Guðmundsson, 5
Ísak Rafnsson, 4
Árni Benedikt Árnason, 3
Víglundur Jarl Þórsson, 3
Leó Snær Pétursson, 1

Brynjar Darri Baldursson stóð í markinu allan tímann og varði 7 skot.

Þar með er ljóst að liðið hafnar í 4. og neðsta sæti riðilsins.

Svíar unnu Dani 30 - 20 í dag og því eru það Svíar og Sviss sem komast áfram í átta liða úrslit en Íslendingar og Danir fara leika um 9. - 16. sæti.

Hér er hægt að komast á heimasíðu mótsins.


Geir Guðmundsson í leik með landsliðinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson