Oddi er ýmislegt til lista lagt
| | 16. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur Gretarsson í lið 4. umferðar hjá MorgunblaðinuNú liggur fyrir val Morgunblaðsins á bestu leikmönnum 4. umferðar N1-deildarinnar. Oddur Gretarsson er fulltrúi Akureyrar í hópnum að þessu sinni. Það sýnir best hve Oddur er fjölhæfur leikmaður að hann er að þessu sinni valinn besti varnarmaðurinn og bætir þar skemmtilegri fjöður í hattinn sinn.
Úrvalsliðið er þannig skipað að áliti Morgunblaðsins, tölur innan sviga tákna hve oft viðkomandi hefur verið valinn í úrvalsliðið. Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson, ÍR Vinstri skytta: Eyþór Magnússon, HK Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR (2) Leikstjórnandi: Tjörvi Þorgeirsson, Haukum (2) Hægri skytta: Ragnar Jóhannsson, FH (2) Hægri hornamaður: Finnur Ingi Stefánsson, Val Markvörður: Björn Viðar Björnsson, Fram Varnarmaður: Oddur Gretarsson, Akureyri Handboltafélag (3)
Jafnframt valdi Morgunblaðið Sturlu Ásgeirsson, ÍR mann umferðarinnar en Sturla fór á kostum þegar ÍR vann FH í 4. umferð. Sturla skoraði þar 12 mörk úr 14 skotum, þar af voru sex mörk af vítapunktinum.
Við óskum leikmönnunum öllum til hamingju með viðurkenninguna. |