Bjarni er ekki óvanur að vera í liði vikunnar
| | 1. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarBjarni Fritzson og Guðmundur Hólmar í liði 10. umferðarÍ dag birta Morgunblaðið og Handbolti.org niðurstöður sínar hvað varðar leikmenn í úrvalslið 10. umferðar. Líkt og stundum áður þá ber þessum aðilum ekki alveg saman í valinu. Tveir leikmenn Akureyrar, þeir Bjarni Fritzson og Guðmundur Hólmar Helgason eru í liði Hanbolti.org en fengu ekki náð fyrir augum Morgunblaðsmanna.
Hér á eftir er hægt að sjá úrvalslið beggja aðila, talan innan sviga táknar hversu oft viðkomandi leikmaður hefur komist í úrvalsliðið.
Lið umferðarinnar að mati Handbolti.org: Vinstri hornamaður: Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum (4) Vinstri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri (1) Leikstjórnandi: Ásbjörn Friðriksson, FH (1) Hægri skytta: Ragnar Jóhannsson, FH (3) Hægri hornamaður: Bjarni Fritzson, Akureyri (5) Línumaður: Hjálmar Þór Arnarsson, Val (1) Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum (1)
Lið 10. umferðar að mati Morgunblaðsins: Vinstri hornamaður: Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum (3) Vinstri skytta: Ingimundur Ingimundarson, ÍR (2) Leikstjórnandi: Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu (2) Hægri skytta: Ragnar Jóhannsson, FH (3) Hægri hornamaður: Sigurjón F. Björnsson, ÍR (2) Línumaður: Hjálmar Þór Árnason, Val Markvörður: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum Varnarmaður: Andri Berg Haraldsson, FH (2)
Heimasíðan óskar öllum þessum leikmönnum til hamingju með árangur sinn. Hægri hornamenn liðanna, Bjarni Fritzson og Sigurjón F. Björnsson. Mynd: Hilmar Þór/sport.is
Vinstri skytturnar, Guðmundur Hólmar kominn framhjá Ingimundi. mbl.is/Ómar
|