Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Slæmt tap gegn Aftureldingu í dag - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni var markahæstur í dag

13. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Slæmt tap gegn Aftureldingu í dag

Afturelding og Akureyri áttust við í Mosfellsbæ í síðasta leik liðanna fyrir jólafrí. Botnliðið, Afturelding, gerði sér lítið fyrir og vann Akureyri og hefur þar með unnið báða deildarleiki liðanna á leiktíðinni en Akureyringar unnu reyndar þegar þau mættust í bikarnum. Það var frábær vörn og markvarsla sem lagði grunninn að góðum sigri Mosfellinga.

Við birtum hér umfjöllun Siguróla Sigurðssonar sem birtist á sport.is stuttu eftir leikinn.

Heimamenn gáfu tóninn strax í fyrstu vörn varðandi það sem koma skildi en þar unnu þeir boltann og skoruðu úr hraðaupphlaupi, 1-0. Akureyringar áttu afar erfitt gegn sterkri vörn Mosfellinga og skoruðu Norðanmenn aðeins þrjú mörk fyrstu fimmtán mínútur leiksins. Mosfellingar léku við hvern sinn fingur í sókinni og skoruðu nánast úr hverju skoti fyrstu fimmtán mínúturnar. Fljótlega var staðan orðin 10-3 fyrir Mosfellinga en þá kom ágætur kafli hjá Akureyri og var staðan 13-8 í hálfleik en ekkert var skorað síðustu fjórar mínúturnar í fyrri hálfleik og hefði munurinn því bæði getað verið meiri og minni.

Akureyringar skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks og virtust ætla að koma beittari til leiks. Það var þó ekkert mikið meira en það því varnarleikur Aftureldingar hélt áfram á sama pústi og í fyrri hálfleik og gekk skyttum Akureyringa illa að athafna sig. Þegar að Akureyringar komust í færi var Davíðs Svansson í hörku stuði fyrir aftan.

Þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka var Jóhanni Jóhannssyni, besta leikmanni Aftureldingar í leiknum, vikið af leikvelli fyrir slagsmál við Guðmund Hólmar Helgason en eitthvað sem Guðmundur gerði (var í sókn þegar atvikið skeði) fór illa í Jóhann sem lét Guðmund finna fyrir því. Akureyringar virtust tvíeflast við þetta og gerðu atlögu að sex marka forystu Mosfellinga en höfðu ekki árangur sem erfiði. Smá titringur kom í sóknarleik Mosfellinga og tók Reynir Reynisson leikhlé. Það virtist róa mannskapinn og stigu ungir og efnilegir leikmenn upp og kláruðu leikinn með stæl. Lokatölur í Mosfellsbæ 32-26, fyllilega sanngjarn sigur þeirra rauðklæddu.

Erfitt er að útskýra hvaða andleysi einkenndi Akureyringa í kvöld en þeirra einkennismerki í vetur: stemmingin, var ekki til staðar. Hún var í herbúðum Mosfellinga sem að léku sennilega sinn besta leik í vetur í kvöld, þrátt fyrir brottföll úr liðinu sökum meiðsla.

Mörk Aftureldingar: Jóhann Jóhannsson 9, Helgi Héðinsson 5, Sverrir Hermannsson 4, Þrándur Gíslason 3, Pétur Júníusson 3, Hilmar Stefánsson 3, Kristinn H. Bjarkason 2, Elvar Ásgeirsson 2, Benedikt Reynir Kristinsson 1. Davíð Svansson varði 18 skot í markinu.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 10, Andri Snær Stefánsson 3, Geir Guðmundsson 3, Guðmundur Hólmar Helgason 3, Valþór Guðrúnarson 3, Bergvin Þór Gíslason 2, Hreinn Þór Hauksson 2.
Jovan Kukobat varði 2 skot í marki Akureyrar og Tomas Olasson 9.

Úrslit annarra leikja kvöldsins gera það að verkum að Akureyri heldur 3. sæti deildarinnar með 11 stig eins og Fram og ÍR. Í innbyrðis viðureignir þessara þriggja liða hefur Akureyri 6 stig (4 gegn Fram og 2 gegn ÍR), Fram hefur 4 stig (öll fengin gegn ÍR) en ÍR hefur 2 stig (gegn Akureyri) og því raðast þau í þessa röð sem gerir það að verkum að Haukar, FH, Akureyri og Fram komast í deildarbikarinn.
Hann verður leikinn í lok janúar. Það er ljóst að Akureyrarliðið þarf að nota hléið vel til að ná vopnum sínum og sjálfstrausti áður en slagurinn hefst að nýju eftir reglubundið landsleikjahlé sem nú tekur við.

Heimir: Þetta var algjör skita

„Sjálfstraustið er greinilega í molum frá síðasta leik. Þetta var eiginlega nákvæmlega eins og sá leikur. Það er gamla klisjan með andleysi þegar illa gengur,“ sagði Heimir Örn Árnason annar þjálfari Akureyrar við blaðamann visir.is í kvöld.

„Þetta er búið að ganga vel hjá ungu strákunum en nú komu tveir smá down leikir en þetta er ekki gott veganesti í fríið, ég skal viðurkenna það og við þurfum aldeilis að rífa okkur upp.

Það var allt lélegt í dag. Önnur skammarleg frammistaða. Við þurfum að skoða hvað hefur farið úrskeiðis síðustu tvær vikurnar, bæði sem leikmenn og þjálfarar,“ sagði Heimir.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson