Bjarni, Sveinbjörn og Árni í Akureyrargallanum
| | 19. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarBjarni Fritzson í 28 manna landsliðshópnumAron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur sent inn lista yfir þá leikmenn sem koma til greina í lokahópinn fyrir heimsmeistaramótið á Spáni sem fram fer í janúar. Bjarni Fritzson, þjálfari og leikmaður Akureyrar er í hópnum og þar að auki eru tveir fyrrum leikmenn Akureyrar þeir Sveinbjörn Pétursson markvörður sem nú leikur með Aue í Þýskalandi og Árni Þór Sigtryggsson sem leikur með TSG Friesenheim í Þýskalandi.
28 manna hópur Íslands er þannig skipaður:
Markverðir Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum Björgvin Páll Gústavsson, Magdeburg Daníel Freyr Andrésson, FH Hreiðar Levý Guðmundsson, Nötteröy Sveinbjörn Pétursson, Aue
Vinstri hornamenn Bjarki Már Elísson, HK Guðjón Valur Sigurðsson, Kiel Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Necker Löwen
Línumenn Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar Róbert Gunnarsson, Paris Handball Vignir Svavarsson, Minden
Vinstri skyttur Aron Pálmarsson, THW Kiel Björgvin Hólmgeirsson, ÍR Fannar Þór Friðgeirsson, Wetzlar Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad Ólafur Gústafsson, Flensburg
Leikstjórnendur Snorri Steinn Guðjónsson, GOG Ólafur Bjarki Ragnarsson, Emsdetten
Hægri skyttur Alexander Petersson, Rhein-Necker Löwen Árni Þór Sigtryggsson, Friesenheim Ásgeir Örn Hallgrímsson, Paris Handball Ernir Hrafn Arnarson, Emsdetten Ólafur I. Stefánsson, Lakhwiya Sports Club
Hægri hornamenn Bjarni Fritzson, Akureyri Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer Þórir Ólafsson, Kielce
Varnarmenn Ingimundur Ingimundarson, ÍR Sverre Jakobsson, TV Grosswallstadt. |