Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Sigur og töp um síðustu helgi
16. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Útileikir um næstu helgi
Um síðustu helgi léku bæði 2. flokks lið Akureyrar hér heima. Akureyri-2 hóf leik á föstudagskvöldið þegar þeir mættu Gróttu í bikarleik. Leikurinn var æsispennandi og þrátt fyrir að Gróttumenn séu í 1. deild þá máttu þeir þakka fyrir að fara með eins marks sigur, 23-24 eftir að hafa leitt 11-13 í hálfleik.
Í hádeginu á laugardag lék Akureyri-2 síðan deildarleik gegn ÍR. Sá leikur var ekki síður spennandi. Jafnt var í hálfleik, 11-11 en að lokum fór ÍR með eins marks sigur 21-22.
Strax á eftir hófst deildarleikur Akureyri-1 og Gróttu. Það var ekki síður dramatík í þeim leik, jafnt í hálfleik, 11-11. Í seinni hálfleik voru Gróttumenn með yfirhöndina lengst af en á lokaandartökum leiksins sneri Akureyrarliðið leiknum sér í hag og unnu sætan eins marks sigur 27-26.
Þessi sömu lið, Akureyri-1 og Grótta mætast síðar í 8 liða úrslitum bikarsins, sá leikur hefur þó ekki verið dagsettur en verður heimaleikur Akureyrar.
Nú um helgina fara bæði Akureyrarliðin suður, Akureyri 1 leikur við Selfoss á föstudaginn klukkan 20:00 og við Val í Vodafone höllinni á laugardaginn klukkan 12:30.
Akureyri-2 leikur við ÍR í Austurbergi á föstudaginn klukkan 20:00 og síðan við Þrótt á sama stað klukkan 14:30 á laugardaginn.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson