Guðlaugur þjálfari 2. flokks
| | 2. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri-2 með tvo sigra á ÞróttiStrákarnir í Akureyri-2 spiluðu tvo leiki við Þrótt um helgina. Fyrri leikurinn var á föstudagskvöldið og þar fóru Þróttarar vel af stað og náðu strax í upphafi fjögurra marka forskoti. En með þrem síðustu mörkum fyrri hálfleiks náði Akureyri að minnka muninn í eitt mark, 11-12. Heimir Sigurðsson skoraði síðasta markið beint úr aukakasti eftir að leiktími hálfleiksins rann út.
Strákarnir náðu að jafna í upphafi seinni hálfleiks en Þróttur samt með yfirhöndina þar til tíu mínútur voru til leiksloka að Akureyri náði að komast yfir og lauk leiknum með dramatískum eins marks sigri Akureyrar 26-25.
Mörk Akureyrar: Finnur Heimisson 6, Heimir Sigurðsson 5, Arnór Þorsteinsson 4, Sölvi Andrason 4, Ágúst Már Sigurðsson 2, Ingvar Heiðarsson 2, Ingvi Ásgeirsson 2 og Ásgeir Gíslason 1.
Liðin mættust aftur í hádeginu í dag og nú byrjuðu Akureyrarstrákarnir af krafti og höfðu örugg tök á leiknum allan tímann. Í hálfleik var forysta Akureyrar fimm mörk, 15-10. Forystan var síðan örugg allan seinni hálfleikinn en strákarnir gáfu þó óþarflega eftir undir lokin og Þróttarar klóruðu í bakkann. Lokatölur urðu þó þægilegur fjögurra marka sigur, 29-25.
Mörk Akureyrar: Arnór Þorsteinsson 7, Heimir Sigurðsson 6, Ágúst Már Sigurðsson 3, Ingvar Birgisson 3, Snæþór Haukur 3, Sölvi Andrason 3, Bragi Benediktsson 2, Finnur Heimisson 1 og Ingvi Ásgeirsson 1. Í markinu átti Gunnar Bjarki stórleik með 22 varin skot en Gunnar var sömuleiðis magnaður í fyrri leiknum.
|