Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Akureyri og FH hafa mæst ansi oft síðustu árin
12. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri og FH mætast alltaf í Bikarnum - 2. hluti
Í gær hófum við yfirför okkar yfir baráttu Akureyrar og FH í Bikarkeppninni síðustu ár, en liðin mætast fimmta árið í röð í Bikarkeppninni á morgun. Nú er kominn síðari hlutinn af yfirferð okkar.
Tímabilið 2009-2010:
Áhugaverð staða kom upp í 32-liða úrslitum þegar Akureyri átti að mæta 1. deildarliði Fjölnis, en Fjölnismenn gáfu leikinn og því var Akureyringum dæmdur 0-10 sigur. FH þurfti að hafa aðeins meira fyrir sínu sæti í 16-liða úrslitum þegar liðið vann 22-39 útisigur á Víkingi 2, en þetta var annað árið í röð sem þessi lið mættust í 32-liða úrslitum.
Akureyri og FH drógust svo á móti hvort öðru í 16-liða úrslitum og Akureyri fékk heimaleikinn. FH mætti mun sterkari til leiks og fyrir framan fulla Höll léku þeir á alls oddi og leiddu 10-16 í hálfleik. Okkar menn hinsvegar komu tvíefldir til leiks í síðari hálfleikinn og náðu að minnka muninn niður í 1 mark, það var hinsvegar ekki nóg og FH sigraði að lokum 22-23.
Umfjöllun um leikinn má finna hér:
Akureyri – FH, 16-liða úrslit
FH tapaði svo í næstu umferð gegn Haukum í rosalegum leik 37-38. Haukar fóru svo nokkuð auðveldlega í gegnum keppnina og enduðu sem Bikarmeistarar.
Liðin mættust 5 sinnum þetta tímabilið, 3 í deild, 1 í bikar og 1 í deildarbikar. Akureyri vann 2 en FH vann 3.
Tímabilið 2008-2009:
Akureyri fékk heimsókn frá Reykjanesbæ þegar lið HKR mætti norður. Ekki er hægt að segja að leikur liðanna hafi verið spennandi en Akureyri vann 51-15 eftir að hafa verið yfir 24-7 í hálfleik. FH mætti hinsvegar í Víkina og mætti þar Víkingi 2, ekki var mikil spenna í þeim leik heldur og unnu FH-ingar 22-45 sigur.
Umfjöllun um leikinn má finna hér:
Akureyri – HKR, 32-liða úrslit
FH fékk svo heimaleik gegn okkar mönnum í 16-liða úrslitum. Eftir mjög góðan fyrri hálfleik leiddi Akureyri 16-19, en FH hinsvegar kom gríðarlega sterkt inn í síðari hálfleikinn og eftir 5 mínútur voru þeir komnir yfir 22-21, leiknum lauk svo með frekar öruggum sigri FH 37-31.
Umfjöllun um leikinn má finna hér:
FH – Akureyri, 16-liða úrslit
FH mætti Haukum í Kaplakrika í 8-liða úrslitum og var betri aðilinn, eftir að hafa verið yfir 16-14 í hálfleik landaði liðið sigri 29-28. Hinsvegar datt liðið út í undanúrslitum þegar þeir mættu ofjörlum sínum í Val sem unnu sigur 29-25 eftir að hafa verið með örugga forystu í gegnum leikinn.
Valur endaði svo sem Bikarmeistari eftir að hafa unnið þægilegan 31-24 sigur á 1. deildarliði Gróttu í úrslitaleiknum.
Liðin mættust alls 3 sinnum þetta tímabilið, 3 í deild og 1 í bikar. Akureyri vann 1 leik en FH vann hina 3.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson