Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það verður örugglega rosaleg stemming á leikjum helgarinnar
1. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Útileikjatörn hjá öllum flokkum um helgina
Það er óhætt að segja að leikmenn Akureyrar Handboltafélags verði á faraldsfæti um helgina. Meistaraflokkur mætir ÍR í Austurbergi á laugardaginn klukkan 15:00 í algjörum úrslitaleik um sæti í úrslitakeppninni í vor. ÍR er í 4. sæti þrem stigum á undan Akureyri sem er í 5. sætinu. Með sigri heldur Akureyri í vonina um að ná 4. sætinu en með tapi er vonin nánast úr sögunni.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV
2. flokkur
Það er líka strangt prógram hjá báðum liðunum í 2. flokki.
Akureyri 1
mætir FH klukkan 17:30 á föstudaginn í Kaplakrika. FH er sem stendur efst í 1. deildinni og hefur ekki tapað leik. Þegar liðin mættust hér á Akureyri gerðu þau jafntefli 30-30.
Klukkan 18:00 heldur
Akureyri 1
í Mosfellsbæinn og leikur við heimamenn í Aftureldingu. Akureyri vann heimaleikinn 29 – 24.
Akureyri 2
leikur sömuleiðis tvo leiki í 2. deildinni. klukkan 19:30 á föstudag mæta þeir HK í Digranesi. HK er taplaust í efsta sæti deildarinnar þannig að það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Akureyri 2 og HK mættust á Akureyri um síðustu helgi og þar fór HK með eins marks sigur eftir að Akureyi 2 hafði verið með sex marka forystu í hálfleik.
Á laugardaginn klukkan 12:00 mætir
Akureyri 2
síðan Víkingum. Stutt er síðan liðin léku tvo leiki á Akureyri þar sem Akureyri vann þægilega sigra báðum leikjum. Það er þó ekkert gefið í boltanum og strákarnir verða að mæta af fullum krafti í þennan leik.
Strákarnir í 2. flokki ætla síðan að fjölmenna á leik Akureyrar og ÍR í meistaraflokki á laugardaginn og halda uppi baráttustemmingu á pöllunum.
Við minnum stuðningsmenn á að fulltrúar Akureyrar verða með forsölu á bikarleikinn gegn Stjörnunni í Austurbergi í tengslum við leikinn gegn ÍR.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson