Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Guðmundur Hólmar og Snorri voru atkvæðamestir í dag
15. apríl 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Akureyri úr leik eftir framlengingu gegn Val
Það var gríðarleg spenna í Höllinni í kvöld þegar Akureyri og Valur áttust við í átta liða úrslitum Íslandsmótsins. Jafnt var á öllum tölum lengst af í fyrri hálfleik en Valsmenn náðu fimm marka forskoti undir lok hálfleiksins. Akureyri klóraði þó í bakkann og lagaði stöðuna með síðustu þrem mörkum hálfleiksins þannig að forskot Vals var tvö mörk í hálfleik, 10 – 12.
Akureyri jafnaði fljótlega í seinni hálfleik en Valsmenn héldu þó frumkvæðinu í leiknum lengst af. Lokamínúturnar voru æsispennandi og lauk með því að Akureyri fékk vítakast sem Ásgeir Jóhann Kristjánsson skoraði úr og jafnaði í 24 – 24 og grípa þurfti því til framlengingar.
Valsmenn reyndust sterkari í framlengingunni og fóru með tveggja marka sigur 27 – 29 og eru þar með komnir í fjögurra liða úrslitin.
Mörk Akureyrar:
Guðmundur Hólmar Helgason 10, Snorri Björn Atlason 6, Ásgeir Jóhann Kristinsson 4, Kristján Sigurbjörnsson 3, Friðrik Svavarsson 2 og Geir Guðmundsson 2.
Í markinu varði Tomas Olason 12 skot (1 vítakast) og Gunnar Bjarki Ólafsson 3 skot þar af 1 víti.
Hjá Val skoruðu Alexander Júlíusson og Agnar Smári Jónsson 8 mörk hvor, Bjartur Guðmundsson og Gunnar Þórsson 4 hvor, Sveinn Aron Sveinsson 3 og Valdimar Sigurðsson 2.
Besti maður Valsliðsins var þó markvörðurinn Sigurður Ólafsson sem átti sannkallaðan stórleik og geta Valsmenn þakkað honum að hafa komist í gegnum leikinn og áfram í mótinu.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson