Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Bjarni og Oddur verða flott teymi
15. maí 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Handboltaskóli Bjarna Fritz 10. - 21. júní
Handboltaskóli Bjarna Fritz verður haldinn á Akureyri 10. - 21. júní og er ætlaður ungmennum 10 ára og eldri. Aðstoðarmaður Bjarna á námskeiðinu er enginn annar en Oddur Gretarsson og munu þeir án efa mynda flott teymi. Skipt verður í hópa eftir aldri og því munu strákar og stelpur æfa saman.
Handboltaskólinn verður frá mánudeginum 10. júní til föstudagsins 21. júní.
Æfingarnar verða í tvo tíma í senn þar sem afrekshugsun og fagmennska verður í hávegum höfð. Æfingarnar byrja á stuttum fyrirlestrum meðal annars um 1000 klst regluna, árangur, ósigra og næringu.
Boðið verður upp á morgunæfingu hvora vikuna fyrir sig. Á þessari aukaæfingu verður lögð áhersla á snerpu-sprettahraða og stökkkraft.
Að auki mun Bjarni leikgreina krakkana og fara yfir greininguna með þeim, til að auka leikskilning þeirra.
Mikil áhersla er lögð á að hafa æfingarnar skemmtilegar, en um leið krefjandi og á háu tempó.
Síðasti dagurinn verður á léttu nótunum, þar sem foreldrar eru velkomnir til að kíkja á afraksturinn. Verðlaun verða veitt fyrir þá sem skara framúr á námskeiðinu og allir fá viðurkenningarskjal með umsögn frá Bjarna og Oddi.
ATH. Takmörkun er á fjölda sem kemst á námskeiðið, því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á:
handboltaskolibjarnafritz@gmail.com
Nánari upplýsingar í síma 6927407
Námskeiðið kostar 12.900
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson