Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Valþór, Bjarni og Kristján Orri voru markahæstir gegn Gorenje
17. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þýskalandspistill nr. 2- föstudagsleikurinn
Þá er degi þrjú að ljúka hjá okkur strákunum í Akureyri. Á fimmtudaginn voru tvær æfingar en hápunktur dagsins var keilumót og spurningakeppni sem fram fór um kvöldið. Í stuttu máli var eitt lið sem bar af í keppninni, lið sem samanstóð af Hlyn, Vladimir og Andra Snæ. Hlutu þeir vegleg verðlaun fyrir sigurinn.
Ekki er hægt að komast hjá því að minnast á matinn sem boðið var upp á á hótelinu, pylsusúpa í hádeginu vakti vægast sagt ekki mikla lukku hjá hópnum ekki frekar en bjúgusúpan sem boðið var upp á í kvöldmat. Meira að segja alætunni Sissa var misboðið.
Á föstudaginn hófst mótið hjá okkur með leik á móti Slóvenska stórliðinu Gorenje. Jafnræði var með liðunum fyrstu 15 mínútur leiksins og 3-2-1 vörn okkar gerði óvinaliðinu erfitt fyrir. Þá fór markmaður Gorenje að loka á okkur og fengu Slóvenarnir urmul af hraðupphlupum fyrir vikið. Staðan í hálfleik 19-12 Gorenje í vil. Munaði miklu um að markvarslan var 11-2 Slóvenunum í vil.
Seinni hálfleikur þróaðist mjög svipað og sá fyrri nema að Jovan fór að verja mun betur en í fyrri hálfleik. Slóvenarnir eru fyrst og fremst með mjög sterkt hraðaupphlaupslið og skoruðu þeir nánast 80% marka sinna úr seinni bylgju og hraðaupphlaupum. Lokatölur voru 37-25 Gorenje í vil.
Markaskorarar Akureyrar í leiknum voru:
Valþór Atli 6, Bjarni Fritz 6, Kristján Orri 5, Gunnar Malmquist 3, Vladimir 2, Þrándur Gíslason Roth 1, Arnór 1, Andri Snær 1
Varin skot voru Jovan 9 og Tomas 2
Menn leiksins: Valþór Atli og Kristján Orri sem stóðu sig vel og voru með góða nýtingu.
Setning dagsins: Sigþór Árni Heimisson, ég get svo svarið það strákar að þetta er ekki þýska sem þeir í hinu liðinu eru að tala.
Á laugardaginn bíður okkar leikur gegn þýska 3. deildarliðinu Dessau sem tapaði gegn Gummersbach í dag.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson