Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Goði alltaf góður
7. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri og Valur unnu fyrstu leikina
Opna Norðlenska mótið hófst með tveimur leikjum í gær, föstudag. í fyrri leiknum mættust Akureyri og Fram, Akureyri byrjaði betur og náði þriggja marka forystu, 6-3 en þá svaraði Framliðið með fimm mörkum í röð. Fram hélt frumkvæðinu í leiknum nema hvað Akureyri skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddi 15-14 í hálfleik.
Akureyrarliðið tók síðan öll völd í seinni hálfleik, skoraði fimm fyrstu mörkin og hélst sex marka munur lengst af en Fram klóraði í bakkann undir lokin með fjórum síðustu mörkum leiksins sem endaði með tveggja marka sigri Akureyrar
24-22
.
Mörk Akureyrar:
Bjarni Fritzson 7 (2 úr vítum), Kristján Orri Jóhannsson 6, Andri Snær Stefánsson 4, Vladimir Zejak 3, Þrándur Gíslason 2, Sigþór Heimisson og Valþór Guðrúnarson 1 mark hvor.
Í markinu varði Jovan Kukobat 17 skot, þar á meðal 2 vítaköst. Tomas Olafson kom inn á og spreytti sig á tveim vítaköstum og varði annað þeirra með tilþrifum.
Mörk Fram:
Egill 5, Arnar 4, Sveinn Þorgeirsson 3, Garðar Benedikt Sigurjónsson 3 (3 úr vítum), Sigfús Páll Sigfússon 2, Gummi 2, Raggi 2 og Ármann 1.
Markverðir Fram vörðu samtals 12 skot.
Í seinni leiknum mættust Stjarnan og Valur. Mikið jafnræði var með liðunum lengi framan af og jafnt í stöðunni 9-9. Þá tóku Valsarar mikinn kipp og skoruðu sex mörk í röð og höfðu örugga forystu í hálfleik, 11-17. Munurinn jókst í upphafi seinni hálfleiks og varð mestur átta mörk, 13-21. Stjörnumenn voru ekki af baki dottnir, Einar Hólmgeirsson tók til sinna ráða og raðaði inn mörkum og skyndilega var forskot Valsmanna komið niður í þrjú mörk, 24-27. Valsmenn sigldu þó þægilegum fimm marka sigri í höfn en lokatölur urðu
26-31
fyrir Val.
Mörk Stjörnunnar:
Einar Hólmgeirsson 7, Ari M. Þorkelsson 4 (2 úr vítum), Starri Friðriksson 4 (1 víti), Egill Magnússon 3, Hjálmtýr Alfreðsson 2, Andri Hjartar Grétarsson 2, Guðmundur Guðmundsson 2, Sverrir Eyjólfsson 1 og Finnur Jónsson 1.
Í markinu var Sigurður Ólafsson sterkur með 13 skot varin, 1 vítakast.
Mörk Vals:
Þorgrímur Smári Ólafsson 6, Atli Már Báruson 5, Orri Freyr Gíslason 3, Sveinn Aron Sveinsson 3 (1 víti), Elvar Friðriksson 3, (1 víti), Vignir Stefánsson 3, Ægir Hrafn Jónsson 2, Finnur Ingi Stefánsson 2, Bjartur Guðmundsson 2, Geir Guðmundsson 1 og Ásbjörn Stefánsson 1 mark.
Hlynur Morthens varði 5 skot áður en hann var sendur af velli með rautt spjald en Lárus Ólafsson tók við og varði 10 skot.
Mótinu lýkur í dag, laugardag með eftirfarandi leikjum:
Kl. 10:00 Stjarnan – Akureyri
Kl. 11:30 Valur – Fram
Kl. 13:30 Fram - Stjarnan
Kl. 15:00 Akureyri – Valur
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson