Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Stuðningsmenn Akureyrar hafa verið stórkostlegir undanfarin ár
10. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Stuðningsmannaskírteini 2013-2014
Akureyri Handboltafélag á dyggan stuðningsmannaklúbb sem stendur þétt að baki félaginu og skapar frábæra stemmingu í kringum heimaleikina. Heimaleikir í N1 deildinni verða að minnsta kosti 10 en 11 ef liðið verður í hópi fjögurra efstu eftir fyrstu fjórtán umferðirnar.
Líkt og síðasta vetur nefnist félagsskírteini stuðningsmannaklúbbsins
Gullkort
. Innifalið í Gullkortinu er:
Aðgangur að öllum heimaleikjum Akureyrar í N1 deildinni, engin biðröð í miðasölunni menn sýna einfaldlega kortið.
Hluti áhorfendastúkunnar í Höllinni er frátekinn fyrir stuðningsmannaklúbbinn og geta þeir sem þess óska fest sér ákveðið sæti. Þeir sem festa sér sæti ganga einnig að þeim vísum á bikarleikjum og úrslitakeppni.
Aðgangur að stuðningsmannaherbergi fyrir leiki og í hálfleik en þar er á boðstólum heitur matur fyrir leik og kaffihlaðborð í hálfleik. Eftir leiki koma menn saman og fara yfir gang mála ásamt leikmönnum og þjálfurum. Stuðningsmannaherbergið er að sjálfsögðu einnig opið í bikarleikjum og ef liðið kemst í úrslitakeppnina.
Á tveim leikjum á tímabilinu verða sannkallaðar stórveislur í boði fyrir Gullkortahafa en þá verður sérstaklega mikið lagt í allar veitingar.
Gullkortin eru númeruð og geta handhafar þeirra átt von á því að verða þátttakendur í happdrættum á heimaleikjum þar sem veglegir vinningar verða í boði.
Fleiri atriði sem Gullkortshöfum standa til boða verða kynnt á leikmannakynningunni næstkomandi fimmtudagskvöld í Íþróttahöllinni.
Verð á Gullkortinu er
25.000.- krónur
. Fyrir þá upphæð fæst eins og að framan greinir aðgangur að allt að 11 leikjum, auk þess að minnsta kosti 11 máltíðir og kaffihlaðborð.
Smelltu hér til að panta Gullkortið
Glaðbeittir stuðningsmenn í veislumat
Boðið er upp á nokkrar greiðsluleiðir auk þess sem hægt er að semja um raðgreiðslur ef það hentar. Sala kortanna hefst fyrir alvöru á leikmannakynningunni, þau verða einnig seld á heimaleikjum og hægt verður að leggja inn pöntun á heimasíðunni.
Við hvetjum áhugasama til að verða sér úti um skírteinin tímanlega til að fá sem mest fyrir peninginn.
Fyrsti heimaleikur Akureyrar Handboltafélags er svo fimmtudaginn 19. september þegar við fáum Íslandsmeistara Fram í heimsókn.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson