Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Jovan og Valþór Guðrúnarson fóru fyrir sínum mönnum í dag
19. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sannfærandi sigur Akureyrar í fyrsta leik
Það var ekki laust við að það væri taugatitringur í leikmönnum og áhorfendum í Íþróttahöllinni þegar Akureyri og Fram mættust í opnunarleik Olís-deildarinnar. Gríðarlega öflugur varnarleikur og frábær markvarsla gerði það að verkum að nánast engin mörk voru skoruð framan af leiknum. Þannig var staðan 3-3 þegar leikið hafði verið í rúmar 20 mínútur.
Markaskorunin framan af leik minnti á knattspyrnuleik
Það var síðan Akureyri sem tók völdin á lokamínútum fyrri hálfeiks og leiddi með þrem mörkum, 9-6 í hálfleik.
Akureyrarliðið mætti hins vegar af miklum krafti í seinni hálfleikinn og tók leikinn gjörsamlega í sínar hendur. Vörn og markvarsla var áfram til fyrirmyndar og við bættist árangursríkur sóknarleikur. Akureyri jók forskotið jafnt og þétt sem varð mest átta mörk, 21-13 og 23-15. Lokatölur urðu öruggur sigur Akureyrar 25-18.
Eins og áður segir var fyrri hálfleikurinn ekki mjög áhugaverður en óhætt að segja að strákarnir hafi verið mjög flottir í þeim seinni. Jovan Kukobat átti stórleik í markinu og Valþór Guðrúnarson var í miklum ham í sókninni sem skilaði honum 8 mörkum. Kristján Orri Jóhannsson sýndi í seinni hálfleiknum að hann kann ýmislegt fyrir sér og skoraði 5 mörk í honum. Ungu strákarnir Sigþór, Arnór, Gunnar Malmquist og Jón Heiðar áttu virkilega flotta spretti og verður gaman að fyljgast með þeim í næstu leikjum.
Jovan og Þrándur áttu skínandi leik í dag
Varnarleikur liðsins var frábær allan leikinn og gaman að sjá baráttustemminguna sem skilaði þessum fína sigri á Íslandsmeisturunum sem gætu átt erfiðan vetur framundan.
Mörk Akureyrar:
Valþór Guðrúnarson 8, Kristján Orri Jóhannsson 5, Bjarni Fritzson og Sigþór Heimisson 3 hvor, Þrándur Gíslason 2, Arnór Þorri Þorsteinsson, Gunnar Malmquist, Halldór Logi Árnson og Jón Heiðar Sigurðsson 1 mark hver.
Í markinu var Jovan Kukobat með 15 varin skot og var valinn maður Akureyrarliðsins í leiknum.
Mörk Fram:
Sigfús Páll Sigfússon 5, Sigurður Örn Þorsteinsson og Stefán Baldvin Stefánsson 4 hvor, Garðar Sigurjónsson og Ólafur Magnússon 2 mörk hvor og Sveinn Þorgeirsson 1 mark.
Steffan Nielsen varði 8 skot og Svavar Már Ólafsson 1 skot. Sigfús Páll var valinn maður Framliðsins í leiknum.
Bendum á linka efst á síðunni til að skoða
myndir
,
tölfræði
og allt um
gang leiksins
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson