Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Þrándur mun örugglega standa í ströngu í dag
5. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri – ÍBV klukkan 13:30
Það verður heldur betur fjör í Íþróttahöllinni í dag þegar Akureyri og ÍBV mætast í fyrsta sinn í fimm ár. Bæði lið eru með tvö stig eftir tvo leiki í deildinni en bæði lið unnu sína leiki í fyrstu umferð, Akureyri vann Fram og ÍBV vann ÍR. Ekki er að efa að bæði lið stefna á sigur í leiknum enda mikilvægt að hala inn stig í deildinni sem fer vægast sagt skemmtileg af stað.
Þetta er síðasti leikurinn í 3. umferð en það er greinilegt að mikið jafnræði er með liðunum í deildinni sem öll hafa þegar tapað leik sem gefur vísbendingu um fjöruga og athyglisverða baráttu í vetur.
Þrír leikir voru í gær þar sem Fram sigraði Val, Haukar unnu FH og ÍR-ingar unnu HK.
Leikurinn hefst klukkan 13:30 í dag sem er óvenjulegur tími en eiginlega bara fínn, það er enginn stórleikur í enska fótboltanum þannig að það er tilvalið að skella sér í Höllina og fylgjast með hörku handboltaleik. Ekki er annað vitað en liðin geti tjaldað sínum sterkustu leikmönnum, og verður gaman að sjá Eyjamenn aftur í baráttunni. Þeir eru með stórskyttuna Róbert Aron Hostert sem kom frá Íslandsmeisturum Fram, tvo sterka erlenda leikmenn auk annarra reynslubolta sem komu liðunu upp í úrvalsdeildina í vor.
Heimsíðan verður með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast á leikinn.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson