Kristján var drjúgur í leikjum helgarinnar
| | 25. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Þrjú stig í hús um helginaStrákarnir í 2. flokki léku tvo leiki við Selfyssinga um helgina og voru þetta fyrstu heimaleikir þeirra í deildinni. Laugardagsleikurinn fór ekki nógu vel af stað hjá þeim og voru þeir sex mörkum undir í hálfleik, 11-17 og útlitið ekki gott. En með mögnuðum seinni hálfleik tókst þeim að vinna upp muninn og náðu að ljúka leiknum með jafntefli, 25-25 sem verðað að teljast þokkaleg úrslit eins og fyrri hálfleikurinn spilaðist.
Mörk Akureyrar: Kristján Sigurbjörnsson 5, Brynjar Grétarsson 4, Daníel Matthíasson 4, Arnór Þorsteinsson 3, Friðrik Svavarsson 2, Garðar Jónsson 2, Róbert Sigurðsson 2, Sigþór Heimsson 2 og Birkir Guðlaugsson 1 mark.
Hjá Selfyssingum var Sverrir Pálsson markahæstur með 7 mörk en Jóhann Erlingsson og Sævar Eiðsson með 5 mörk hvor.
Liðin mættust síðan aftur á sunnudaginn og þá sýndu strákarnir allt annan leik. Sóknarleikurinn var hraður og árangursríkur og strákarnir nú gerðu strákarnir út um leikinn í fyrri hálfleik með níu marka forskot, 20-11.
Í seinni hálfleiknum slökuðu þeir á og endaði leikurinn með fimm marka sigri 31-26.
Mörk Akureyrar: Daníel Matthíasson 6, Kristján Sigurbjörnsson 6, Patrekur Stefánsson 6, Arnór Þorsteinsson 5, Garðar Jónsson4, Birkir Guðlaugsson 2, Arnþór Finnsson 1 og Róbert Sigurðsson 1. Arnar Fylkisson og Bjarki Símonarsson stóðu vaktina í markinu um helgina
Hjá Selfyssingum voru markahæstu menn þeir sömu og á laugardaginn, Sverrir Pálsson 8 og Jóhann Erlingsson með 6. |