Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Kristján Orri verður í eldlínunni í dag
10. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri – FH í Coca-Cola bikarnum
Það má segja að það verði leikið upp á líf eða dauða í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri og FH mætast í átta liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Það er einfaldlega þannig að tap í bikarleik þýðir að þátttöku tapliðsins í keppninni er lokið.
Það hefur verið fastur liður undanfarin sex ár að Akureyri og FH hafa mæst í bikarkeppninni og þó aldrei í úrslitaleik keppninnar og ljóst að það gerist ekki heldur í ár.
Stemmingin í bikarleikjum er alltaf sérstök enda mikið undir og hefur staða liða í deildarkeppninni lítið forspárgildi um gengi liðanna þegar út á völlinn er komið. Liðin mættust einnig hér í Höllinni fyrir ári síðan í 8-liða úrslitum bikarsins og hafði Akureyri verið líkt og nú í ströggli í deildinni. Þeir létu það þó ekkert á sig fá og unnu verðskuldaðan sigur 30-26 eftir að FH hafði leitt í hálfleik 13-14.
Jovan Kukobat ver víti frá Ásbirni Friðrikssyni í bikarleiknum í fyrra
FH-ingar mæta án efa dýrvitlausir í leikinn til að hefna fyrir bikarleikinn í fyrra þannig að við getum lofað frábærri skemmtun í Höllinni. Leikið er til þrautar í bikarnum eins og kom glögglega í ljós í gærkvöldi þegar 1. deildarlið Aftureldingar lagði spútniklið ÍBV í tvíframlengdum leik í Mosfellsbæ og tryggði sig þar með inn í fjögurra liða úrslitin.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 og það er rétt að minna á að Stuðningsmannaskírteinin gilda ekki á bikarleiki, því þurfa allir að greiða inn á leikinn. Sama verð er á leikinn og deildarleiki, 1.500 kr fyrir fullorðna en 500 fyrir 15 ára og yngri.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson