Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Það eru bara tvær umferðir eftir af deildinni
6. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Spennandi lokaumferðir í Olís-deildinni
Akureyri mætir aftur í Hafnarfjörðinn á fimmtudaginn og mætir þá Haukum í næstsíðustu umferð Olís-deildarinnar. Það er gríðarlega mikið undir hjá báðum liðum en Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn á meðan Akureyri er í hörku baráttu um að sleppa við umspilið.
Staða liðanna í deildinni getur ennþá breyst á ýmsan hátt, það sem er þó ljóst á þessari stundu er að Haukar og ÍBV verða í tveim efstu sætunum, þó að Haukar standi betur að vígi þá á ÍBV ennþá möguleika á að ná deildarmeistaratitlinum.
Valur er sömuleiðis öruggur um sæti í úrslitakeppninni en Fram og FH berjast um síðasta lausa sætið.
Þá er ljóst að HK verður í neðsta sætinu og þar með fallið úr deildinni miðað við núverandi skipulag. Akureyri, FH og ÍR eru síðan í baráttu um að forðast næstneðsta sætið eða umspilssætið en öll þessi lið gætu hafnað í því.
Staðan í deildinni er þannig núna:
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Haukar
19
15
1
3
507 : 426
81
31
:
7
2.
ÍBV
19
14
0
5
526 : 480
46
28
:
10
3.
Valur
19
10
2
7
529 : 456
73
22
:
16
4.
Fram
19
10
0
9
430 : 449
-19
20
:
18
5.
FH
19
8
1
10
483 : 473
10
17
:
21
6.
ÍR
19
8
0
11
507 : 518
-11
16
:
22
7.
Akureyri
19
7
1
11
454 : 490
-36
15
:
23
8.
HK
19
1
1
17
423 : 567
-144
3
:
35
Það er því margt og mikið undir í þessum tveim síðustu umferðum deildarinnar. Enda gilda þær reglur að alla leiki hvorrar umferðar skuli leika samtímis.
Næstsíðasta umferðin fer fram
fimmtudaginn 10. apríl klukkan 19:30
og þá eigast við:
ÍBV – Valur, Fram – ÍR, FH – HK og Haukar – Akureyri.
Lokaumferðin er svo
mánudaginn 14. apríl klukkan 19:30
, leikirnir þá eru: Haukar – ÍBV, Valur – Fram, ÍR – FH og Akureyri - HK
Eini möguleiki ÍBV á að ná deildarmeistaratitlinum er að Akureyri vinni Hauka á fimmtudaginn og síðan þarf ÍBV að vinna bæði Val á fimmtudaginn og einnig Hauka í seinustu umferðinni.
Fram stendur betur að vígi en FH um sæti í úrslitakeppninni en þarf tvö stig úr leikjunum gegn ÍR og Val til að vera öruggt með sætið. Fái Fram eitt stig eða ekkert getur FH, sem er núna þrem stigum á eftir þeim komist uppfyrir Fram eða jafnað þá að stigum og þar sem FH stendur betur í innbyrðis viðureignum liðanna færi FH áfram á kostnað Fram.
Það er því ljóst að Fram hlýtur að leggja alla áherslu á að vinna ÍR á fimmtudaginn til að tryggja sætið.
Barátta Akureyrar, ÍR og FH um að forðast umspilssætið er býsna flókin og getur tekið á sig ýmsar myndir. Fái Akureyri fleiri stig en ÍR í þessum tveim lokaumferðum þá sleppur Akureyri og sömuleiðis ef Akureyri fær tveim stigum fleiri en FH þá sleppur Akureyri líka. Það má því búast við að leikur ÍR og FH í lokaumferðinni verði æsilegur.
En Akureyri á sem sé eftir tvo leiki, Hauka á útivelli á fimmtudaginn og síðan HK hér á Akureyri mánudaginn 14. apríl, að sjálfsögðu munu strákarnir berjast fyrir öllum stigunum í báðum þessum leikjum og gulltryggja þar með að lenda ekki í umspilinu.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson