Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Haukar eru erfiðir á heimavelli
10. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Haukar – Akureyri í beinni á RÚV
Næstsíðasta umferð Olís-deildar karla verður spiluð í kvöld en þá fara samtímis fram fjórir leikir og verður flautað til leiks klukkan 19:30. Augu stuðningsmanna Akureyrar beinast að sjálfsögðu að leiknum í Scenkerhöllinni þar sem okkar menn heimsækja ofurlið Hauka. Það má reyndar gera ráð fyrir að flestir áhorfendur fylgist með þeim leik þar sem hann er í beinni útsendingu á Íþróttarás RÚV.
Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni
.
Eins og komið hefur fram hér á heimasíðunni þá hefur leikurinn mikla þýðingu fyrir bæði liðin, Akureyri hefur full not af báðum stigunum í botnbaráttunni á meðan Haukar þurfa bara eitt stig úr leiknum til að tryggja sé deildarmeistaratitilinn.
Það verður örugglega mikil spenna í Safamýrinni þar sem Fram tekur á móti ÍR. Fram vantar tvö stig til að gulltryggja þátttöku sína í úrslitakeppninni og gera væntanlega allt hvað þeir geta til að krækja í þau stig í kvöld. Að sama skapi eru ÍR ingar í sömu stöðu og Akureyri, að berjast fyrir því að forðast 7. sætið í deildinni þannig að þeir munu án efa berjast til síðasta manns í þeim leik.
FH fær botnlið HK í heimsókn og verða að teljast sigurstranglegri aðilinn í þeim leik, þó að ekkert sé útilokað í þeim efnum. Eins og menn muna þá gerðu liðin jafntefli í fyrstu umferð Olís-deildarinnar. FH-ingar vonast eflaust til að Fram misstígi sig gegn ÍR og haldi þannig opnum möguleika FH-inga til að komast í úrslitakeppnina, en þá þurfa þeir líka að vinna HK í kvöld.
Síðasti leikur umferðarinnar er í Eyjum þar sem ÍBV tekur á móti Val. Bæði lið eru örugg í úrslitakeppnina en leikurinn getur hugsanlega haft áhrif á röð liðanna í deildinni. Ef Akureyri vinnur Hauka þá verður ÍBV að vinna þennan leik til að eiga von um að verða deildarmeistarar. Valsmenn eru fyrir leikinn í 3. sæti deildarinnar en ef þeir tapa leiknum og Fram vinnur leikinn gegn ÍR verður hreinn úrslitaleikur um 3. sætið á milli Vals og Fram í lokaumferðinni.
Það er því mikið í húfi á öllum vígstöðvum og ljóst að ekkert verður gefið eftir í leikjum kvöldsins.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson