Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Já þér er boðið á leikinn gegn Val
11. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Handboltaveisla á sunnudaginn - frítt á leikinn
Það má svo sannarlega segja að það sé handboltaveisla á Akureyri á sunnudaginn þegar fyrsti heimaleikur Akureyrar í Olísdeildinni fer fram.
Íslandsbanki býður öllum frítt á leikinn
þannig að það er um að gera að nýta sér þetta kostaboð.
Mótherjinn er heldur ekki af lakara taginu, Valur sem er spáð góðu gengi í vetur, öðru sæti deildarinnar ef spár ganga eftir.
Viðureignir Akureyrar og Vals hafa í gegnum tíðina verið hin besta skemmtun og ekki spillir fyrir að helstu hetjur Valsliðsins eru einmitt Akureyringarnir Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson.
Leikurinn hefst klukkan 17:00 í KA heimilinu en það er upplagt að mæta tímanlega á staðinn því fyrir leikinn verður hægt að ganga frá kaupum á ársmiðum (silfurkortum) og gullkortum fyrir tímabilið.
Gullkortið
innifelur aðgang að öllum heimaleikjum Akureyrar, hvort sem er í deildarkeppninni, úrslitakeppnum eða bikarkeppninni. Auk þess er gullkortahöfum boðið upp á aðgang að stuðningsmannaherberginu en þar er í boði heitur matur fyrir leiki og kaffi í hálfleik. Auk ýmissa fríðinda sem tilkynntir verða síðar. Það er nýlunda í vetur að Gullkortið veiti jafnframt aðgang að heimaleikjum í bikar- og úrslitakeppninni. Verð á Gullkortinu 2015-2016 er
30.000 krónur
.
Silfurkortið
eða ársmiðinn er fyrst og fremst aðgöngumiði að öllum heimaleikjum liðsins í Olís deildinni (ekki bikar og úrslitakeppni). Silfurkorthafar þurfa því ekki að standa í röð í miðasölunni heldur ganga beint inn. Silfurkortið 2015-2016 kostar
20.000 krónur
.
Þeir sem ganga frá kaupum á kortum (Gull- eða Silfur) fyrir sunnudagsleikinn fá jafnframt glæsilegt barmmerki með nýja merki Akureyrar Handboltafélags.
Boðið er upp á nokkrar greiðsluleiðir auk þess sem hægt er að semja um raðgreiðslur ef það hentar.
Hægt er að panta kort með því að
smella á myndirnar af kortunum
hér að ofan! Þeir sem panta með þeim hætti geta nálgast kortin í KA heimilinu fyrir leikinn að öðrum kosti verður þeim komið til viðkomandi fyrir næsta heimaleik!
Sjáumst í KA heimilinu á sunnudaginn!
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson